Home Page Image
  Learning is a treasure that will follow its owner everywhere
 
 


Ágæti lesandi

Ég heiti Ester Þorsteinsdóttir og er nemandi á kennsluréttindabraut við Kennaraháskóla Íslands. Í einum áfanga okkar, Kennslusvæði greinasviða, er eitt verkefnið ferilmappa. Hún á að vera hugsuð sem tæki mitt til að byggja upp starfskenningu mína. Hér hef ég sett inn verkefni mín, æfingakennsluna og fleira. Og þar sem að ég hef gert fleiri verkefni á árinu tengt náminu hef ég valið nokkur af þeim til að hafa hér inni. Ég t.d. skrifaði ritgerð um verkfallið 2004 fyrir Fagmennsku kennara og var mjög áhugavert að vinna í henni.

Að sjálfsögðu var það val okkar nemenda að gera hana rafræna og þar sem að ég hef menntunina og þekkinguna valdi ég að gera hana rafræna.

Eftir útskrift núna í desember hef ég réttindi til að kenna í framhaldsskóla eða efstu bekkjum grunnskóla. Ég er prentsmiður og stefnan var að kenna fagið við Iðnskólann í Reykjavík. Ég byrjaði haustið sem grunnskólakennari 7.bekkjar til að öðlast meiri innsýn í starfið. Það fór ekki einsog ég bjóst við, byrjaði hress og kát með bros á vör en eftir mánuð var orka mín búin og áhuginn snar minnkað. Í dag veit ég ekki enn hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór.