Hvernig tannbursta er best að nota?
- Alveg sama.
- Rafmagnstannbursta.
- Mjúkan tannbursta með þéttum hárum.
- Harðan tannbursta.
Hvernig tannkrem er almennt best fyrir grunnskólabörn?
- Tannkrem við tannsteini.
- Tannkrem til að hvítta tennurnar.
- Skiptir ekki máli.
- Flúortannkrem.
Hvers vegna á ekki að skola munninn eftir síðustu tannburstun?
- Þá myndast tannsteinn.
- Flúorið heldur áfram að virka í munninum eftir tannburstun.
- Skemmdirnar lagast.
- Til að venjast bragðinu.
Hvað má búast við að tannburstun taki langan tíma?
- Um 1 mínútu.
- Um 2 mínútur.
- Um 3 mínútur.
- Um 4 mínútur.
Hvers vegna er nauðsynlegt að skipta reglulega um tannbursta?
- Tannbursti með slitnum hárum hreinsar ekki.
- Það er óþarfi að skipta reglulega um tannbursta.
- Til að tannkremið renni ekki af.
- Til að eiga fallegri tannbursta.