Nú er stutt í skráningu í Háskólann og á ég í nokkru basli við að velja mér nám. Þar sem ég veit að fleiri eru í sömu sporum hef ég útbúið einfalda námsákvörðunarvél sem mun ákvarða framtíð notandans. Það eina sem þú þarft að gera er að skrá inn þrjú helstu áhugamál þín og smella á takkann.
Rétt er að geta þess að við úrvinnslu er vægi áhugamála þinna 0%, enda værir þú ekki að þessu ef þú vissir á hverju þú hefur áhuga.