Hérna eru hátíðirnar í tímaröð. Óstaðfestar dagsetningar eru merktar með bláum lit. Restin er frekar self explanatory.
Það lítur út fyrir að ég verði í framlengdri útskriftarferð í júní þannig að ég sleppi nokkrum ágætum: Pinkpop (30. maí - 1. júní) og Rock am Ring (4-8. júní) að minnsta kosti.
Glastonbury
Pilton, Somerset
260 hljómsveitir (alls um 380 viðburðir)
Gestir eru yfir 150.000 fullir Bretar. Ég segi fyrir mig að árleg barátta um miða og breskt veðurfar dregur soldið úr áhuganum.
Rock Werchter
Werchter, Flæmska Brabant
60 hljómsveitir
þessi er nokkuð góð tónlistarlega séð en það vantar alveg warm-up.
Hljómsveitir: Radiohead, Chemical brothers, Kaiser Chiefs, Sigurrós, Chris Cornell, Lenny Kravitz, The hives, REM, deus
Eurockéennes
Belfort, Franche Comté
60 hljómsveitir
100.000 gestir. Það var ekki gaman að bíða mánuðum saman eftir fréttum af þessari hátíð í fyrra þannig að ég nenni því varla núna.
Roskilde
Roskilde, Sjálandi
170 hljómsveitir
110.000 gestir. Brilliant as always.
Hljómsveitir: Radiohead, Chemical brothers
Benicàssim
Benicàssim, Castellón
100 hljómsveitir
Þessi finnst mér alltaf jafn spennandi þótt tónlistinn sé ekki eins mikil snilld og á Hróa. Svo eru sáralitlar líkur á rigningu og drullu.
Paléo
Nyon, Vaud
120 hljómsveitir
Veit svosem lítið um þessa. Hljómveitir verða ekki tilkynntar fyrr en í apríl sem er ókostur
Lollapalooza
Chicago, Illinois
130 hljómsveitir
Ég hef í raun lítin áhuga þessari nú orðið en hún fær að hanga inni.
Pukkelpop
Kiewit, Flæmska Limburg
180 hljómsveitir
130.000 gestir. Þessi kemur inn að nýju. Eins gott að enginn falli á prófum í vor.