Skartgripirnir okkar eru í öllum stærðum og gerðum. Þeir eru ýmist unnir úr leðri, roði,áli, stáli, hraunkúlum og perlum.
Hægt er að leggja inn pöntun á netfanginu kristadesign@internet.is. Taka þarf fram hvaða vöru er óskað eftir og eins ef einhverjar séróskir eru varðandi útlit og stærð.
Einnig er velkomið að kíkja við, fá að máta eða skoða.
Fuglanistin eru unnin úr húðuðu áli eða ryðfríu stáli. Þau fást í 2 síddum og mismunandi litum.
Armböndin eru úr tréperlum eða roði.
Hringir og eyrnalokkar eru ýmist úr roði eða dufthúðuðu áli.
Kúluprýðin eru síð keðjumen, með mismunandi kúlum, ýmist stál, rhinestoneskreyttum, perlu eða hraunkúlum. Þessi men fást með síðum keðjum.
Perluprýðin er búin að sanna ágæti sitt og hentar konum á öllum aldri. Hálsmenin eru úr silkiborða sem rykktur er á ákveðinn hátt en á hann eru þræddar handmálaðar tréperlur og acrylkúlur í bland.
Þetta eru léttar og þægilegar festar, sparilegar eða hversdags. Fást í allskonar litum og stærðum.