05.10.2011
Nú er farið að hausta allverulega og Krista farin að komast í jólaskap. Myrkrið kallar á falleg kertaljós og nýr jólakertastjaki kom í hús í dag. Um er að ræða aðventukertastjaka eða bara jólastjaka með 4 kertaglösum, útskorinn með jólamyndum og lýsir fallega í gegnum mynstrið. Hægt er að skipta glösunum út fyrir kubbakerti og þá er stjakinn meira eins og bakki.Prófið að setja lituð kertaglös eða kerti í bakkann og áhrifin verða allt önnur.
09.05.2011
Krista er komin úr sumarfríi og nú verða áfram opin hús á miðvikudögum milli kl 16.00 og 21.00 nema annað sé auglýst.!
11.04.2011
Meðgönguhálsmen sem "klingir" í. Smart að bera en einnig með tilgang :)
Þessi hálsmen hjá Kristu Design eru okkar útfærsla af meðgönguhálsmenum sem þekkt eru víða um heim en upprunalega í Mexíco. Talið er að með því að bera hálsmenið sem klingir bjölluhljóði, hafi róandi áhrif á barnið í móðurkviði eftir ca 20 vikna meðgöngu
11.03.2011
Fleiri Hjartagull væntanleg, koma úr sprautun eftir helgi. Tilvalin fermingargjöf.
07.03.2011
Nýju muffinsturnarnir eru komnir á síðuna, verðið er 11.900.-
28.02.2011
Vorum að bæta við framleiðsluna, nafnanistum sem þarf að sérpanta.
Nistin eru úr ryðfríu stáli og erum um 18 mm á hæð og 6-
Þau hanga lóðrétt og koma í síðum keðjum. Tilvalin fermingar eða útskriftargjöf. Panta þarf tímanlega, 7 daga afgreiðslufrestur.
29.01.1011
Ný heimasíða hefur nú litið dagsins ljós með nýjum myndum og vörum.
Vonandi verður þessi síða enn aðgengilegri en sú gamla og vil ég taka fram að hægt er að leggja inn pöntun á netfanginu kristadesign@internet.is
Þá er hægt að leggja inn á bankareikning og fá vörurnar sendar í pósti.
02.08. 2010
Nytt!! Sushibakkar, Um er að ræða stóran bakka 29x29cm og 6 minni sushidiska með skálum fyrir soya og wasabi. Efniviður, gegnheild keramikflís,gúmmí og gler.
01.06. 2010
Birki. Ný tegund í hitaplattalínunni. Sama stærð og er á Fróni / Íslandsplattanum.
19. 05. 2010
Perluprydi kallast ný afurð hjá Kristu. Um er að ræða handmálaðar tréperlufestar á satínborða.
Fást í 2 litum, ljósar og dökkar. Agalega smart við hverskonar tilefni og mismunandi fatnað. Fyrir konur á öllum aldri.
Verum fallega skreyttar og skvísulegar í sumar. Tilvalið í útskriftagjafir.
16.04. 2010
Vorum að bæta við heimilislínuna, Selskapsbökkum sem framleiddir eru úr keramikflísum. Annarsvegar ASKA sem er háglansandi hvít flís
og hinsvegar HRAUN sem er með mattari og grófari áferð.
25. 03. 2010
Heitt úr smiðjunni: Kertastandar fyrir útikerti, hentugir fyrir heimilið og fallegir á leiði, t.d. Sem samúðargjöf.
Hluti ágóðans af sölu kertastandanna rennur í minningarsjóð Orra Ómarssonar sem lést 30 janúar 2010
Og er markmið sjóðsins að hjálpa ungu fólki á yngsta stigi framhaldsskóla sem upplifir í hjarta sínu og sál, djúpa dali.
10. 03. 2010
Vorum að bæta við skartgripaúrvalið.
Fuglanisti, Hrafnar og Uglur komnar í sölu í verslun Volcano, hægt að máta og skoða.
Íslensk framleiðsla frá a-
22. 02. 2010
Vörurnar frá Krista Design má nú nálgast í Sirku á Akureyri. Norðlenska hráefnið aftur komið til heimahaganna.
21. 01. 2010
Krista Design er komin ísamstarf við Epal og fást vörurnar okkar nú í verslunum þeirra.
20. 01. 2010
Vorum að framleiða stærri gerð af Íslandsklukkunni sem kemur glettilega vel út. Renna út eins og heitar lummur ;)
14. 01. 2010
Það er gaman að segja frá því að Séð og heyrt kíkti í heimsókn ekki fyrir löngu og má sjá afraksturinn í næsta blaði.





Hér munum við reyna að setja inn fréttir af framleiðslunni og nýjungum hjá Krista Design.