Gerast vinur á         © Copyright  Krista Design 2011     María Krista Hreiðarsdóttir  sími: 6901756    e-mail: kristadesign@internet.is
FORSÍÐA

Krista Design er lítið fyrirtæki sem rekið er af hjónunum Maríu Kristu Hreiðarsdóttur og  Berki Jónssyni.

María Krista er grafískur hönnuður frá Listaháskóla Íslands og einnig útskrifuð úr iðnhönnun úr Iðnskólanum í Hafnarfirði.

Börkur er menntaður vélfræðingur.

 

Handverk og hönnun hefur lengi verið áhugamál hjá okkur og sérstaklega er gaman að hanna nytjahluti og skrautmuni úr efnum sem eru óvenjuleg og ekki er verra ef þau eru endurnýtt  á einhvern hátt.

 

Krista Design framleiðir margskonar gjafa- og heimilisvöru sem meðal annars er unnin úr endurunnum hjólbörðum frá Gúmmívinnslunni hf.

 

Gúmmívinnslan hf. var stofnuð 1982 og var upphaflegur tilgangur enduvinnsla á gúmmíi. Strax var farið að endurvinna vörubílahjólbarða með sólningu. Við sólninguna fellur til gúmmí sem notað er til framleiðslu á hverskyns nytjahlutum svo sem öryggishellum, mottum,millibobbingum fyrir fiskitroll, plöttum og fleiru.

 

Með þessari endurvinnslu er stuðlað að verndun umhverfisins og þróun á arðbærri framleiðslu úr hráefnum sem að öðrum kosti yrðu ekki notuð.

 

Eins bjóðum við upp á úrval af skartgripum úr roði, leðri og áli og ýmsa muni sem unnir eru úr þekktum efnum í nýju hlutverki.

Megináhersla okkar er að öll framleiðslan fer  fram hér á landi. Íslenskt, já takk!

 

ATH !! að best er að nálgast  skartgripina beint til Kristu Design.

Við erum  staðsett í Hafnarfirði, Brúsastöðum 2 ,en gott er að hringja á undan sér.

Er yfirleitt með opið hús  á miðvikudögum nema annað sé auglýst á facebook.  

Nánari uppl. í síma 6901756.

UM OKKUR