03. nóvember, 2010
Fyrir þá sem vilja fræðast meira um þetta mál og vilja leggja okkur lið til við að fá þessum lögum breytt, viljum við benda á fésbókarsíðuna Frelsi til ljósmyndunar en hún heldur utan um þá aðila sem vilja berjast fyrir frelsi ljósmyndunar á Íslandi.
http://www.facebook.com/pages/Frelsi-til-ljosmyndunar/161763463844391
28.október, 2010
Ágætu viðskiptavinir!
Við undirrituð eigendur Augljós auglýsingastofu, er rekið hafa heimasíðuna Brosbörn, höfum ákveðið að leggja niður starfsemi okkar er viðkemur stafrænni myndvinnslu auglýsingastofunnar. Þetta gerum við í kjölfar ákæru sem við fengum á okkur frá 9 ljósmyndurum, þeim:
Bjarna Jónssyni / Elínu Gylfadóttur / MYND,
Erlingi Ó.Aðalsteinssyni / ERLING LJÓSMYNDASTOFA,
Fríði Eggertsdóttur / SVIPMYNDIR,
Hörpu Hrund Njálsdóttur / LJÓSMYNDAVER HÖRPU HRUNDAR
Guðmundi Kr. Jóhannessyni / NÆRMYND
Rut Hallgrímsdóttur / LJÓSMYNDIR RUTAR
Oddgeiri Karlssyni / LJÓSMYNDASTOFA ODDGEIRS,
Sólveigu Þórðardóttur / NÝMYND
..en þar erum við sökuð um brot á iðnaðarlögum með því að hafa rekið ljósmyndstofu án réttinda. Við vorum sakfelld í héraðsdómi fyrr í mánuðinum og má lesa nánar um dóminn hér:
http://www.domstolar.is/domaleit/nanar/?ID=S201000461&Domur=3&type=1&Serial=1
Vörn okkar byggðist á þeim réttindum sem ég, María Krista hef sem löggildur grafískur hönnuður, enda með BA gráðu í stafrænni myndvinnslu, meðal annars og hef aldrei kynnt mig sem ljósmyndara.
Vörn okkar gekk þó ekki eftir, þar sem iðnaðarlöggjöfin sem ver rétt faglærðra ljósmyndara virðist sterkari. Við teljum okkur ekki geta haldið starfseminni áfram þó að málið allt sé að okkar mati tímaskekkja frá a-ö.
Við trúum því að viðskiptavinurinn eigi að hafa frelsi til að velja hvert hann fer með viðskipti sín. Samkvæmt stjórnarskrá Íslands kemur fram að öllum sé heimilt að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa en þó megi setja vissar skorður enda krefjist “almannahagsmunir” þess.
Framfarir í stafrænni tækni, úrelding varhugaverðra efna og tækja sem áður fyrr gátu skapað hættu fyrir viðskiptavininn og niðufelling á þessari löggjöf í nágrannalöndum, voru meðal annars rök sem við notuðum í málflutningi okkar en allt kom fyrir ekki. Hér má lesa ágætis grein sem áhugaljósmyndari sendi til fjölmiðla varðandi þetta mál. http://www.vf.is/Adsent/46195/default.aspx
Við hörmum mjög að geta ekki haldið áfram rekstri en þökkum um leið fyrir frábær samskipti og góðar stundir á undanförnum árum.
Biðjum innilega að heilsa börnunum ykkar, eigið yndisleg jól og óskum við ykkur farsæls komandi nýs árs.
Bestu kveðjur.
María Krista, grafískur hönnuður og Börkur Jónsson, vélfræðingur, stoltir eigendur hönnunarfyrirtækisins www.kristadesign.is en þar munum við halda ótrauð áfram í framleiðslu íslenskrar hönnunar á gjafavöru og skarti.
Þökkum kærlega fyrir allan stuðning sem við höfum fengið. |