mánudagur, febrúar 11, 2008

 

Þetta helst...


Ætla að byrja á því að taka það fram að jólabloggið átti ekki að vera svona endasleppt. Það bara hætti að virka. Kem kannski með afganginn af jólamyndunum einhvern tímann í vor.
Annars er svo margt búið að gerast frá 9. janúar að ég veit ekki hvar ég á að byrja. Setti sér færslu um nýju "tölvuna" mína (sem er víst MacBook en ekki iBook og mér er alveg sama) og um kaup á Flugskeytagötunni.
Nína Þorbjörg er líka búin að vera mjög upptekin, enda gulir-rauðir-grænir og bláir dagar í leikskólanum. Ég er búin að standa mig nokkuð vel í þessari litastemningu, eða þangað til að leikskólastarfsfólkið ákvað að hafa rauðan dag OG lopapeysudag sama daginn. Þá náðu þau mér alveg.
Annars er Nína hin hressasta á leikskólanum og bara almennt. Er búin að læra nöfnin á öllum prinsessunum (Öskubusku, Þyrnirós, Jasmín, Mjallhvít, Fríðu og Hafmeyjunni) og þekkir þær í sundur...enda sérfræðingur í hári og förðun. Hún er líka áfram hin músíkalskasta og vill helst mjög taktfasta danstónlist eða klassík. Svo samdi hún sitt fyrsta lag í gær, en það hljómar einhvern veginn svona:
"Uppi á grænum hól"
fnæs fnæs fnæs fnæs
"Kasta snjóbolta"
fnæs fnæs fnæs fnæs
fnæs (fnæst í gegnum nef)
Svo er hún búin að koma sér upp gallharðri kvöldrútínu sem felst í að það á alltaf að syngja sömu lögin fyrir hana í sömu röð:
1. Dansi dansi dúkkan mín
2. Dúkkan hennar Dóru
3. Gulur, rauður, grænn og blár
4. Allir krakkar
5. Bí bí og blaka
6. Hókí pókí (mjög vel valinn endir)
Svo kunna sumir að spyrja sig af hverju þetta fína danska hótel fylgir færslunni... Ástæðan er sú að við skruppum í eina nótt til Kaupmannahafnar, þ.e. ég og mamma, Erna kærastan hans Jens, mamma hennar og systur. Tilefnið var brúðarkjólaleit handa Ernu, sem heppnaðist svakalega vel. Gistum á d´Angleterre á Kongens Nytorv (sbr. umrædda mynd), enda í íslenskri eigu og um að gera að nýta sér það. Mæli með að fara í eina nótt til útlanda, virkilega fín upplyfting! Náðum að fara út að borða nógu oft til að vera alveg komnar með nóg, komumst í H&M, sáum Dani á skautum og lífverði í skrúðgöngu. Fullkomið.

 

Flugskeytagata 3


Aðalfrétt mánaðarins:
Við Árni Grímur erum búin að festa kaup á íbúð í Solna/Frösunda, sem er svona nokkurs konar Kópavogur þeirra Stokkhólmsbúa. Nema að sjálfsögðu meira miðsvæðis en hinn eiginlegi Kópavogur. Þetta er búið að vera töluvert bras og fyrsta kennslustundin í þankagangi Svía, þ.e. látum hlutina ganga mjög mjööööög hægt, svörum ekki tölvupóstum, verum jólasveinar. Annars hefur þetta nú gengið ágætlega. Maður á ekki að vera svona leiðinlegur, heldur bara anda inn um nefið og út um munninn a la jóga. Meðfylgjandi mynd er úr verðandi húsagarðinum okkar. Þetta er svona leynimynd sem þarf að smella á til að hún sjáist. Nýr fídus sem Blogger fann upp alveg sjálfur.
Síðan er maður að hefjast handa við að rusla út úr íbúðinni hérna heima til að hægt sé að setja hana í sölu. Þetta byrjar mjög vel, hef þegar uppgötvað hvar allir 37 sexkantarnir úr IKEA eru niðurkomnir. Er líka búin að finna leiðbeiningarnar sem fylgdu lófatölvunni minni sem dó árið 2005. Þvílíkur fundur!

 

iDRASL

Ástæða langrar og leiðinlegrar bloggþagnar?
Kannski bara nýja iBook "tölvan" mín sem ég keypti í Boston. Vona bara að tollurinn sé að lesa þetta og geri "tölvuna" upptæka, yrði þakklát ef einhver vill losa mig við þetta fyrirbæri. Sá hinn sami getur þá leikið sér í "photo booth" og "teiknimyndagerðarforritinu", sem er ca. það eina sem virkar í fyrirbærinu. Kemst ekki á netið og hinn s.k. Office-pakki virkar ekki baun í bala. Var í startholunum að fara að nota gömlu fartölvuna sem snjóþotu eða stappa á henni til að fá tryggingafé að launum. En hún er í betra fjöri en nokkru sinni fyrr á meðan fyrirbærið er bara fyrir. Er samt ekki tilbúin að stappa á því alveg strax því það er náttúrlega agalega flott. Fékk mér hvítt sko.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?