miðvikudagur, janúar 09, 2008

 

Nína Þorbörg og afi Þórður eru búin að vera dálítið í því að semja tónlist yfir jólin. Þetta eru mest villtar útsetningar af þekktum barnalögum á við "Allir krakkar" og fleira flott. Hér sitja þau og spila á "gítarinn" eins og Nína kallar það.

 

Við hjónin (sem getum reyndar sagt stolt að við erum orðin 1 árs hjón) enduðum aðfangadagskvöld heima í stofu í miklum huggulegheitum. Gríðarlega vel skreytt og symmetrískt jólatré skemmdi ekki stemninguna.
Vill annars einhver kaupa íbúðina okkar? Hún er ekkert slor.

 

Fékk m.a. flass fá Árna Grími í jólagjöf og er allt í einu orðin hrikalega klár að taka myndir. Get ekki klikkað sbr. meðfylgjandi agalega fína jólakúlu. Fer bráðum að ögra elítunni á flickr. Reynið bara að flickr-a mig....ég flickr-a bara samstundis á móti.

 

Menn eru mikið búnir að vera í "jólakjólnum"...

 

Nína Þorbjörg var mjög ánægð með flugeldana á gamlárskvöld og kallaði þá "ljósaperu úti". Var hins vegar aðeins lengur að sættast við að halda á stjörnuljósi, enda gríðarleg nálægð við hættuna þar á ferðum...
Foreldrar skildu Nínu Þ síðan eftir hjá afa og ömmu eftir miðnætti og fóru í sveitt partý sem stóð til kl. 7. Ég er enn með algjörlega gjörsamlegt ógeð á öllum tegundum áfengis. Veit ekki hvort þetta lagast nokkurn tíman.
Gleðilegt ár!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?