mánudagur, febrúar 11, 2008

 

iDRASL

Ástæða langrar og leiðinlegrar bloggþagnar?
Kannski bara nýja iBook "tölvan" mín sem ég keypti í Boston. Vona bara að tollurinn sé að lesa þetta og geri "tölvuna" upptæka, yrði þakklát ef einhver vill losa mig við þetta fyrirbæri. Sá hinn sami getur þá leikið sér í "photo booth" og "teiknimyndagerðarforritinu", sem er ca. það eina sem virkar í fyrirbærinu. Kemst ekki á netið og hinn s.k. Office-pakki virkar ekki baun í bala. Var í startholunum að fara að nota gömlu fartölvuna sem snjóþotu eða stappa á henni til að fá tryggingafé að launum. En hún er í betra fjöri en nokkru sinni fyrr á meðan fyrirbærið er bara fyrir. Er samt ekki tilbúin að stappa á því alveg strax því það er náttúrlega agalega flott. Fékk mér hvítt sko.

Comments:
Í veröld Steinunnar er iBook=MacBook, annars er Steinunn mjög vel að sér í tækni- og tölvumálum, hún er jafn góð í því og ég er í kaldhæðni...
 
Prófaðu Ctrl-W
JÞE
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?