mánudagur, febrúar 11, 2008

 

Flugskeytagata 3


Aðalfrétt mánaðarins:
Við Árni Grímur erum búin að festa kaup á íbúð í Solna/Frösunda, sem er svona nokkurs konar Kópavogur þeirra Stokkhólmsbúa. Nema að sjálfsögðu meira miðsvæðis en hinn eiginlegi Kópavogur. Þetta er búið að vera töluvert bras og fyrsta kennslustundin í þankagangi Svía, þ.e. látum hlutina ganga mjög mjööööög hægt, svörum ekki tölvupóstum, verum jólasveinar. Annars hefur þetta nú gengið ágætlega. Maður á ekki að vera svona leiðinlegur, heldur bara anda inn um nefið og út um munninn a la jóga. Meðfylgjandi mynd er úr verðandi húsagarðinum okkar. Þetta er svona leynimynd sem þarf að smella á til að hún sjáist. Nýr fídus sem Blogger fann upp alveg sjálfur.
Síðan er maður að hefjast handa við að rusla út úr íbúðinni hérna heima til að hægt sé að setja hana í sölu. Þetta byrjar mjög vel, hef þegar uppgötvað hvar allir 37 sexkantarnir úr IKEA eru niðurkomnir. Er líka búin að finna leiðbeiningarnar sem fylgdu lófatölvunni minni sem dó árið 2005. Þvílíkur fundur!

Comments:
Smá sannleiksinnslag frá tæknitröllinu: Lófatölvan dó ekki árið 2005, hún varð batteríslaus í fyrsta og síðasta sinn árið 2005 og átti engan að til að hlaða sig, vesalings lófatölvan...
 
Heil og sæl og takk fyrir síðast!
Segi bara til lukku með kaupin og áhugavert að berja húsakostinn augum.
Einnig verður að segjast að það er skemmtilegur sjarmi yfir nýjasta samvinnuverkefni ykkar hjóna þ.e. skemmtilegum Steinunnarfærslum með ekki síður skemmtilegum ÁrnaG kommentum með leiðréttandi ívafi ;)
Sjáumst á unglæknadaginn
Addý
 
Til hamingju með íbúðina :)
 
Leitt með lófatölvuna. Mín var sannanlega biluð samt, hún komst aldrei í notkun - kostaði 40000 krónur og endaði í viðgerð hjá Óskari (sem notar hana sem snjóþotu).
Ég vil fá að vita nákvæmt heimilisfang eða tengil sem sýnir staðsetningu á google.map!
 
Mér finnst Frösunda vera kúl svona svart! Ætli þetta sé kannski mynd tekin í svartasta skammdeginu?

Til hamingju með kaupin! Ég er sjálf að berjast við amerískt fasteignasystem - það er ekki síður hægt í vöfum og ekki minna flókið. Og ég er bara rétt að byrja að skoða.
 
Til hamingju með nýja heimilið!!

kv Dögg
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?