miðvikudagur, nóvember 28, 2007
Ljúfa lífið...
Man að áður en ég eignaðist Nínu Þorbjörgu fannst mér ótrúlega notalegt að hitta foreldra með börn í kerrum og barnavögnum í bænum. Þetta lítur eitthvað svo vel út, að rölta í miðbænum með vagninn í rólegheitum, kíkja í búðir, setjast á kaffihús og njóta lífsins með eitt stk. krúsídúllumús með í för. Raunveruleikinn hefur engan veginn verið í takt við þessa rjómabolluímyndun. Nýjasta dæmið er frá því í fyrradag þegar ég var harðákveðin í að upplifa miðbæjarröltsdrauminn. Sótti Nínu á leikskólann með kerruna og þrammaði niður Skólavörðustíginn. Mjög fljótlega fór að bera á því að Nínu langaði bara heim og vildi EKKI vera í kerrunni og EKKI fara í búðir. Var komin með helminginn af kvöldmatnum (fiskinn) og stödd við MR þegar ég tók allt í einu eftir að það var sprungið á kerrunni. Á þessum tímapunkti var Nínan að springa úr pirringi yfir þessum ömurleika að vera á labbinu í bænum. Vildi alls ekki vera í kerrunni og heldur EKKI labba sjálf. Það endaði með því að ég dröslaðist heim með kerru með sprungnu dekki, fullt af pokum og leikskóladóti og 14 kg barn í fanginu. Öll leiðin að sjálfsögðu upp í móti. Þetta leiddi til örmögnunar, harðsperra og rennandi svitakófs. Þrátt fyrir þessa mannraun var ég ekki komin með allan kvöldmatinn í hendurnar og Nína orðin svo svekkt að það var ekki fræðilegur möguleiki að hún mundi haga sér eins og manneskja á almannafæri. Þar með tók við 1 1/2 klst. "kælingar- og dekurtímabil", þar sem ég tróð í hana mat og skemmtiefni til að geta loksins dröslast aftur út í búð með hana. Endalaus kæti.
Aðrar fréttir:
1) Þrautagangan sem fylgir því að hafa Árna Grím í Chicago heldur áfram. Nú er nánast allt á heimilinu sem getur bilað búið að bila og ég hef ekki hugmynd um hvernig maður reddar því. Bilað dót:
- Fjölvarpið. Kannast einhver við "smartcard wrong insert"? Ekki ég.
- Fjarstýringin að Margmiðlunarmiðstöð Árna Gríms. Virkar ekki. Veit ekki af hverju.
- Ipodinn minn. Er búin með rafhlöðuna. Kann ekki að hlaða rafhlöðuna.
2) Nína Þorbjörg er farin að raða út úr sér gullkornum. Sá t.d. mynd af jólasveini í blaðinu um daginn, benti á skeggið á honum og sagði "núðlur". Síðan var litla stelpan í fanginu á jólasveininum að sjálfsögðu "mamma".
3) Nína Þorbjörg samþykkti að fara í kjólinn sem gerður var úr jólapakkabandinu og hálsklútnum og er algjört meistaraverk sbr. meðfylgjandi mynd. Vill helst ekki vera í öðru...þannig að stoltið á fullkomlega rétt á sér...
4) Er búin að vera agalega dugleg í vinnunni (ef einhver skildi halda að lífið snerist bara um sprungin kerrudekk og vafasaman saumaskap). Verð allan daginn á morgun að kenna læknanemum að mæla blóðþrýsting, fer á endurlífgunarnámskeið hinn daginn og held fyrirlestur á rannsóknarráðstefnu sama dag. Er að undirbúa þetta allt af mikilli samviskusemi. Bara svona svo það sé á hreinu.
Nína Þorbjörg er eldhugi í þrumuþjálfun. Hún hoppar fram af sófaarminum í óteljandi skipti daglega og miðar mis vel á sófann fyrir neðan...
sunnudagur, nóvember 25, 2007
Stoltið
Ég sóaði tíma mínum ótæpilega s.l. föstudag þegar ég beið í 2 klst. á dekkjaverkstæði meðan verið var að nostra við að skipta um dekk hjá mér. Er þrátt fyrir þessa sólundun alveg ótrúlega stolt af mér þar sem þetta er í fyrsta skipti síðan að ég komst yfir bifreið sem ég er komin á naglana fyrir áramót. Svo er mér alveg sama hvað fólki finnst almennt um nagla og svifryk. Ég er ekki á jeppa þannig að ég hef alveg efni á þessu.
Annars er Árni Grímur staddur á ráðstefnu í Chicago þessa dagana og Nína Þorbjörg hefur náð að ganga alveg ótrúlega á lagið. Ég ræð ekkert við hana svona alein og ástandið á heimilinu er eftir því. Tókst ekki að koma í veg fyrir innflutning í pizza-ofns hilluna (sbr. meðfylgjandi myndir). Tókst ekki að koma í veg fyrir að hún henti uppáhalds eyrnalokkunum mínum í klósettið. Tókst ekki að koma í veg fyrir að hún klæddist bláa jólakjólnum sínum síðan hún var 4 mánaða þótt hann sé á sársaukamörkum vegna smæðar (sbr. meðfylgjandi myndir). Tókst ekki að koma í veg fyrir að hún klæddist brúðarkjólnum sem ég gifti mig í (þ.e. hún hvarf einhvern veginn í allt tjullið). Ef menn halda að mér hafi eingöngu verið fyrirmunað að koma í veg fyrir hluti þá er það alrangt. Það voru líka ýmsir hlutir sem mér tókst ekki að fá framgengt. Fékk hana ekki til að borða gríðar ljúffengar fjallagrasaflatkökur eða jólamandarínur. Fékk hana ekki til að klæðast fyrsta kjólnum sem ég saumaði á hana í saumavélinni minni... Hef átt þessa saumavél í meira en ár, en týndi pedalanum og rafmagnssnúrunni fyrir löngu, þannig að hún hefur verið ónothæf. Gerði heiðarlega tilraun til að nálgast annan pedala hjá "umboðinu"...það var í ágúst og þeir eru enn ekki búnir að hringja. Sveiattan! Alla vegana þá fann ég pedalann í jólaskrautinu (???) núna um daginn og hef verið óstöðvandi í að sauma viðbjóð síðan. Hef saumað tösku úr viskustykki, kjól úr gardínu og annan kjól úr hálsklút og jólapakkabandi. Nína Þorbjörg sýnir þessu megna fyrirlitningu og þegar hún sá gardínukjólinn sló hún í hann og sagði "nei". Síðan reif hún hann af mér og tróð honum undir borð. Ég er að rifna úr stolti yfir þessu.
Og, pedali er víst íslenskt og það er víst beygt svona. Góðar stundir.
sunnudagur, nóvember 18, 2007
RIstað brauð a la Þjóðminjasafnið
Í tilefni af því að Árni Grímur náði þessarri einstöku mynd í Þjóðminjasafninu í dag ákvað ég að tjá mig. Langaði bara að koma því á framfæri hvað Þjóðminjasafnið er skemmtilegur staður, þ.e. kaffiterían og gjafavöruverslunin. Hef enn ekki gerst svo fræg að fara inn í sjálft safnið, en það kemur vonandi að því. Mæli með að fá sér ristaða brauðið og djús. Klikkar ekki.
miðvikudagur, nóvember 14, 2007
Unglingurinn Nína Þorbjörg, jólaóða mamman og vaktatryllti pabbin
Nína Þorbjörg vex hratt úr grasi þessa dagana og er með óþekkt á heimilinu. Neitar nánast öllu sem lagt er til og er í gríðarlegri sjálfstæðisbaráttu. Vill vaka lengi fram eftir, vera fínt klædd og láta teikna sig. Vill ganga um í háhæluðum skóm, helst appelsínugulum. Sem betur fer fyrirfinnst eitt slíkt par hér á heimilinu (sem má alls ekki sjást á morgnana, því þá vill hún fara í því á leikskólann).
Ég tók eitt stykki jólaflipp í dag, sem er algjörlega án fordæmis í mínu lífi. Fór í hið jólaóða Blómaval og ætlaði að skella mér á einn aðventukrans til að vera bara búin að þessu. En, hver reyndist síðan vera sá jólaóði? Ég eða Blómaval??? A.m.k. eru engir kransar komnir í hillurnar þar enn þá... Keypti í staðinn ljósaperu í útiljósið okkar sem hefur verið perulaust í 1-2 ár. Blaðberar og póstberar (og allt þetta lið sem keppist við að drekkja mér daglega í pappírsflóði) hljóta að senda mér blóm og nammi fyrir afrekið.
Árni Grímur er alltaf að vinna, þ.m.t. í kvöld. Ákvað því að blogga til að hann geti séð hvernig dóttir hans lítur út. Annars er honum sérstök vorkunn í kvöld. Fór í fótbolta á undan vaktinni og hefur ekki enn komist í sturtu og heldur ekki í kvöldmat. Mæli ekki með að leita á slysó í kvöld...a.m.k. ekki ef maður þarf að láta röntgena sig.
sunnudagur, nóvember 11, 2007
Örfréttir
Nína Þorbjörg:
- Er aftur orðin heltekin af snuðunum sínum og fer ekki fet án þeirra. Smá smábarnastælar svona.
- Er áfram hörð á því að vera vel tilhöfð og skiptir um föt ítrekað til að geta síðan skoðað útkomuna í spegli.
- Er búin að velja jólaskóna og gerði það "alveg sjálf". Var alsæl í skódeildinni í Hagkaup og vildi kaupa allt (þ.e. allt sem var annað hvort silfur- eða gulllitað og/eða með demöntum).
- Skoðaði jólahreindýrin í Kringlunni í dag, eða jólageiturnar (eins og hún kallar þær sjálf).
Við hin:
- Erum loksins búin að sjá nýjustu David Lynch myndina, Inland Empire, og skildum nákvæmlega ekkert í henni. Er persónulega enn vönkuð eftir lífsreynsluna.
- Fórum um helgina að hitta nýfæddan Óskars- og Önnu Freyjuson, sem er greinilega eðalmenni og þess virði að halda sambandi við.
- Fengum aðstoð við heimilisþrif í fyrsta sinn í síðustu viku og getum núna borðað beint af gólfinu. Algjört framfaraskref.
- Erum annars bara mest búin að vera að vinna til skiptis.
Ég:
- Ætla að taka jólin með trompi þetta árið og vera búin að öllu í nóvember. Umorðun: Skal ná að fjárfesta í aðventukransi og jólatré fyrir gamlárskvöld.
- Hef áhuga á því að laun umönnunarstétta verði hækkuð eins og skot. Þoli ekki þetta rugl lengur!
- Er hætt að kaupa inn í s.k. "lágvöruverslunum" og ætla framvegis að framleiða mínar eigin lágvörur heima í garði. Vil ekki láta hafa mig að fífli lengur. Ætla einnig fá mér metan-bíl og láta hann ganga fyrir mínu eigin gasi.
- Hef áhuga á að almennilega sé staðið að vörnum landsins og er til í að borga fyrir það. Er samt friðarsinni. Þetta fer nefnilega alveg ótrúlega vel saman.
- Held bara að ég vilji halda áfenginu áfram í ÁTVR. Er ekki tilbúin í innrás lágáfengisverslana.

