sunnudagur, október 28, 2007

 

Nínufréttir

 
Nína Aðal má ekki gleymast þótt einhver hluti fjölskyldunnar hafi skroppið til Stokkhólms. Við keyptum handa henni vængi og fjaðrir og ballerínupils í Stokkhólmi sem hún vill vera með alltaf. Hún vill líka alltaf vera með kórónu og/eða húfuna sem sést á myndinni, en hana prjónaði Begga ritari á 13E (listakona).
Nína Þorbjörg talar og talar og talar þessa dagana og öskrar stríðsöskur. Oft öskrar hún bara eitthvað en stundum öskrar hún "GRÆÆÆNABORRG" og vill láta klappa fyrir sér á eftir.
Posted by Picasa

 

Svenska familinskí

 
Mætt til Feneyja norðursins...
Við Árni Grímur erum komin heim eftir geysilega öfluga Svíþjóðarferð þar sem allt var lagt í sölurnar. Flugum fyrst til Kaupmannahafnar (ekki spyrja af hverju...löng saga) og gistum þar eina nótt. Ég byrjaði að gera vel við sjálfa mig strax í Leifsstöð og fékk mér smörrebröd með laxi (mjög sænskt og fínt). Þetta tiltekna smörrebröd olli síðan svæsinni matareitrun sem hófst akkúrat 6 klst. síðar, beint fyrir framan tívolí. Náði að harka þetta af mér meðan við keyptum okkur nýjasta iPod Nano (vægast sagt glæsilegt apparat þótt ég geti enn ekki horft á það án þess að fá í magann) og litum við í nokkrum fatabúðum. Harkaði áfram af mér í gegnum 6 réttaða máltíð á frábærum veitingastað, sem reyndist reyndar verða 3 rétta fyrir mig og 9 rétta fyrir Árna Grím þar sem hann þurfti að klára nánast allan matinn minn. Eyddi svo nóttinni í hressilegt matareitrunarfjör og líka lestarferðinni til Stokkhólms.
Við Árni Grímur fórum bæði í viðtöl og skoðunarferðir um sjúkrahús morguninn eftir komuna til Stokkhólms og gekk það vonum framar. Ég hitti Ragnheiði sem er í sérnámi í öldrun á Huddinge (sem er stokkhólmskur spítali) og hún kynnti mig fyrir yfirlækninum, fullt af öðru starfsfólki, spítalanum, tölvukerfinu á spítalanum, hverfinu í kringum spítalann og ég veit ekki hvað og hvað. Árni Grímur fékk líka meiriháttar skoðunarferð um röntgendeildina á sjúkrahúsinu í Solna (annar stokkhólmskur spítali) sem spannar marga kílómetra og menn þurfa að vera í rokna formi til að koma yfirleitt til greina í vinnu. Okkur leist mjög vel á okkur þarna og erum spennt að flytja út, sem verður vonandi næsta vor/sumar. A.m.k. tóku Svíarnir bara vel í að fá okkur. Kíktum líka í kaffi til Elínar bekkjarsystur okkar, en hún býr í hverfi sem er nálægt spítalanum sem Árni myndi vinna á. Þannig erum við komin með yfirgripsmikla þekkingu á hverfum nálægt spítölum í Stokkhólmi. Áhugavert og ekki það fyrsta sem þú lest um í ferðahandbókum... Okkur sýnist að það sé auðvelt að finna róleg og góð hverfi sem samt eru stutt frá miðbænum, þannig að maður missi ekki af stemningunni sem fylgir því að búa í svona frábærri stórborg.
Að lokum fórum við út að borða með Jens og Ernu og endaði það í svæsnu djammi í Södermalm, þar sem var fullt af börum og göturnar troðnar af fólki. Laugavegur hvað?
Posted by Picasa

 
 
Grámunkagatan.
Posted by Picasa

 
 
Árni Grímur búinn að stilla sér vel upp á vettvangi stokkhólmska blóðbaðsins.
Posted by Picasa

 
 
Fjör í Gamla Stan.
Posted by Picasa

mánudagur, október 15, 2007

 

Iðnar býflugur

 
Vildi stundum að maður gæti tvöfaldað sig...ekkert slor það...
Erum búin að vera á haus, en auðvitað byrjar maður fréttaskotið á því nýjasta nýja hjá Nínu Þorbjörgu. Hún er bara orðin miklu sáttari í leikskólanum og við erum alveg hrikalega ánægð með það. Hún talar vel um Grænuborg (eða "Læbo") og er stundum virkilega æst að komast þangað. Hleypur hress út í bíl og hleypur mjög hress inn á Dropadeildina sína. Algjört æði. Síðan er hún náttúrlega ofurlímheili og músíkant, kann fullt af lögum og textum og finnst gaman að sýna sig og fá klapp og hrós fyrir. Tekur slagarana "Krummi krunkar úti", "Allir krakkar", "Gulur, rauður, grænn og blár", "Fagur fiskur í sjó" (með leikrænum tilburðum), "Dansi, dansi dúkkan mín" og "Höfuð herðar hné og tær", oft á dag. Því miður finnst henni líka alveg hreint meiriháttar gaman að drasla til og skvetta matvælum og það þýðir ekkert að skamma hana því þá fer hún að gráta og snöktir "allir krakkar..." eða "allt í lagi...", og þá er auðvitað ekki hægt að halda áfram að vera með vesen. Eyðum síðan flestum kvöldum í að þurrka af og raða og snurfusa.
Bjó annars til yfirlit í ellefu liðum yfir viðburði síðustu daga. Mæli með að yfirlitið sé lesið í heild sinni og í réttri röð, í undartekningartilfellum gætu menn þó viljað lesa um eitthvað ákveðið sérstaklega.
1. Svíþjóðarferðin.
Erum á leiðinni til Stokkhólms á næstu dögum til að kíkja á sérnám þar. Létum loksins verða af því að hafa samband og mönnum líst held ég bara vel á að hitta okkur. Ætlum að æfa viðtalstækni eins og brjálæðingar og taka þetta á keppnisskapinu. Þetta verður líka að teljast einhvers konar brúðkaupsferð (þær verða greinilega margar og fjölbreytilegar) þannig að stefnan er að fá sér barasta bjór og kannski kíkja á veitingahús.
2. Prófið.
Ég fór í lyflæknisfræðiprófið ógnvænlega annað árið í röð s.l. föstudag og kom ágætlega undan því. Prófið er sem sagt harðsvírað krossapróf sem tekið er á 8 klst., með smá matarpásu og er ætlað til að meta stöðu manns í sérnáminu. Einkunnin er ekki komin en hins vegar er komið í ljós að staða hálsvöðvanna er greinilega ekki sem skyldi. Það var bilun að halda þessu þunga höfði bograndi yfir prófgögnum í 8 klst., ég er enn pikkfrosin með nefið í gólfinu.
3. Októberfest.
Fór beint á októberfest unglækna og læknanema eftir prófið (þrátt fyrir alvarlegt svefnleysi og einkennileg meltingareinkenni). Skemmti mér alveg frábærlega, enda ókeypis bjór í boði. MEÐMÆLI DAGSINS: Föstudagskvöld. Maður gerir sér minni vonir. Öll helgin er framundan. Það eru fáir í bænum. Það getur allt gerst.
4. Margumrædd vísindagrein.
Sendi frá mér vísindagreinina mína í síðustu viku eftir nokkurra ára streð. Er ótrúlega ánægð með að vera loksins búin með þetta á sama tíma og ég er að byrja á næstu vísindagrein. Maður lærir aldrei neitt.
5. Bílamál. AKA Lozer-mobile part 14.
Lozer-mobile var innlagður hjá Brimborgarmönnum í dag og kom strax í ljós að hann var í krítísku ástandi. Einhvern veginn hefur okkur tekist að rústa bremsunum bæði að framan og aftan, rústa einhverri olíusíu og það lekur eitthvað í stýrisbúnaðnum og í olíusysteminu og ég veit ekki hvað og hvað. Og maður var að bruna á þessum bíl um landið. Það er ekki í lagi með mann.
6. Næturvaktir.
Er búin að massa þónokkrar næturvaktir og hefur tekist að halda mér ótrúlega ferskri í gegnum þetta. Bara ef einhver skyldi hafa áhuga á að vita það.
7. Aðalfundur Læknafélags Íslands.
Sat Aðalfund Læknafélags Íslands (eða ALI) einhverja helgina um daginn. Tókst að standa mig einstaklega vel af byrjanda. Mætti ekki fyrr en eftir hádegi fyrsta daginn af því að ég fattaði ekki að ALI hefðu byrjað um morguninn. Var ekki með nein fundargögn af því að þau voru send í pakkasendingu niður á pósthús sem ég hafði ekki nennt að sækja. Týndi á fyrsta degi kostningaréttinum mínum (en á ALI er maður með svona blátt blað með nafninu sínu á sem er "kostningarétturinn" manns og maður á að veifa ef maður er sammála). Gerði mér engan veginn grein fyrir mikilvægi þessa blaðs og leyfði Nínu Þ að eyðileggja það strax fyrsta daginn. Þrátt fyrir þessi skakkaföll var gaman á ALI og ég gerði eitthvað gagn fyrir mitt fólk. Að fundi loknum var síðan meiriháttar skemmtilegur kvöldmatur og skemmtiatriði þar sem Sigurdís var að sjálfsögðu aðalmanneskjan með gítarinn. Skemmdi reyndar aðeins fyrir sér með bleikri "Heavy metal" gítarnögl...en það var bara smáatriði.
8. Facebook.
Kynntist þessu fyrirbæri fyrir nokkrum dögum og er alltaf eitthvað að kíkja þarna inn. Hélt að þetta myndi aldrei koma fyrir mig. Í alvöru.
9. Skerðingin á leikskólanum.
Vegna manneklu á leikskólanum þurfum við tímabundið að sækja Nínu Þorbjörgu fyrr á daginn, eða kl. 15:15. Vissulega er þetta aukið stress, en á hinn bóginn er ég lúmskt sátt. Hér með er ég neydd til að hafa barnið mitt klukkutíma styttra á leikskólanum á dag og ég held að þrátt fyrir það sé hún yfrið nógu lengi þarna. Samfélagið er vægast sagt ekki nógu barnvænt í núverandi mynd.
10. Mál OR og REI og GGE.
Er á móti þessu öllu. Virkilega.
11. Atriði ellefu.
Þetta atriði er að eigin vali. Bætið inn eigin atriði.

Bestu kveðjur,
Steinunn
Posted by Picasa

 
 
Að borða Cheerio´s (alveg sjálf, takið eftir því!), sem er uppáhaldsmaturinn með stóru U. Biður um Cheerio´s oft á dag og það er erfitt að neita henni um það þar sem hún borðar nánast ekkert annað. Vill yfirleitt borða Cheerio´s 15 mín. áður en kvöldmaturinn er tilbúinn og er óhuggandi ef það er ekki orðið við þeirri ósk (segir þá "allt í lagi" ítrekað með grátstafina í kverkunum svo maður bráðnar alveg). Vill líka borða Cheerio´s í silkidressi, en það er annað mál...
Posted by Picasa

 
 
Nína Þorbjörg í uppáhalds leikkastalanum (á Arnarhóli að sjálfsögðu). Stórhættulegt fyrirbæri sem krefst þess að foreldrar dekki 6 fallhættur samtímis (erfitt þegar maður á bara 2 foreldra).
Posted by Picasa

This page is powered by Blogger. Isn't yours?