sunnudagur, nóvember 18, 2007

 

RIstað brauð a la Þjóðminjasafnið

 
Í tilefni af því að Árni Grímur náði þessarri einstöku mynd í Þjóðminjasafninu í dag ákvað ég að tjá mig. Langaði bara að koma því á framfæri hvað Þjóðminjasafnið er skemmtilegur staður, þ.e. kaffiterían og gjafavöruverslunin. Hef enn ekki gerst svo fræg að fara inn í sjálft safnið, en það kemur vonandi að því. Mæli með að fá sér ristaða brauðið og djús. Klikkar ekki.
Posted by Picasa

Comments:
Er einmitt sérstakur aðdáandi Kaffitárs á Þjóðminjasafninu en hef ekki enn komið í verk að skoða safnið síðan það opnaði aftur. Alveg að deyja úr menningu.
 
Ég hef gerst svo fraegur ad fara í thjódminjasafnid en ekki Kaffitár í thjódminjasafninu. Ég maeli med thví, miklu betra en thad var ádur fyrr. Pétur.
 
Gaman að lesa hjá þér bloggið Steinunn! Ég get mælt með safninu, kaffihúsinu og ekki síst ljósmyndasýningunni sem nú stendur yfir þar og heitir einstök börn eftir Mary-Ellen Mark.
Skil þó vel skort á tíma og efforti til að druslast á söfn nema kannski þegar maður er í orlofi!
Kv
Kolla
 
Líka alltaf gaman að fá komment! Greinilegt að fólk er mis Þjóðminjasafnsvætt....er algjörlega á því að maður þurfi að fara að komast lengra en bara í kaffi :)
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?