föstudagur, apríl 20, 2007
Tveir "einstæðir" foreldrar á fullu
Ég veit ekki hvar ég á að byrja, það er svo langt síðan að ég hef skrifað eitthvað. Maður gæti röflað um viðvarandi annríki og sem dæmi um það er vaktaplanið okkar Árna Gríms þessa dagana:
Á miðvikudag var Árni á sólahringsvakt, á fimmtudag var ég á 12 tíma vakt, í dag er venjuleg vinna, á morgun og hinn er ég á 12 tíma vakt og á mánudaginn er Árni á sólarhringsvakt. Engin furða að Nína Þorbjörg sé farin að halda að við séum ein og sama manneskjan sem leikur tvö hlutverk....enda sjáumst við aldrei samtímis (mjög grunsamlegt vægast sagt). Fyrir utan vaktastuð fylgir læknisstarfinu víst stöðug símenntun og vísindavinna (sem á að vera í hæsta gæðaflokki og ekkert frístundagaman). Auðvitað er þetta allt mjög skemmtilegt og nauðsynlegt, en getur verið erfitt þegar báðir aðilar eru á kafi í þessu.
Þrátt fyrir ofangreint hefur okkur tekist að afreka alls konar frá síðustu skrifum, innflutningspartý hjá Sjonna, barnaafmæli hjá Eyjólfi Loga og Úlfi Mána, kíkt á tvo glænýja stráka hjá Möggu Stínu og Mæju, farið í skírnina hans Guðjóns Ísaks (hennar Möggu), Árni Grímur fór bæði á Blonde Redhead og sænsku gaurana Paul og John og Björn eða eitthvað, ég fór í lyflæknisdeildarlæknastelpumatarboð, Árni er byrjaður að spila Klezmer tónlist, ég er búin að stúta tveimur seríum af Greyś Anatomy, ég er búin að klára 1 stk. vísindagrein og búin að koma henni að á Norræna hjartalæknaþinginu (er einhver enn að lesa?). Nína Þorbjörg er líka algjör afreksstelpa og er alltaf að tala meira og meira, kann fullt af orðum og þekkir líka sumt fólk með nafni. Hún syngur með tilþrifum (bra bra bra bra bra gagagagagú) og hoppar, snýr śér í hringi og stendur á tám og einum fæti. Séní segi ég nú bara.
Því miður hefur ekkert fyndið gerst nýlega, a.m.k. ekkert á borð við Lozer-bílinn margfræga. Nína Þorbjörg var ekki einu sinni fyndin þegar hún borðaði páskaeggið sitt, klíndi voða litlu framan í sig og það eru ekki til neinar svæsnar myndir.

Comments:
<< Home
Er svona lúmskt fegin að vera búin að útskrifa Ingu úr söngskóla-spólum Siggu Beinteins og Maríu Bjarkar... þó kannski sérstaklega Maríu Bjarkar....
Fæ allt að því urtikaríulík útbrot þegar ég heyri í "stórstjörnu" þeirra, ferlíkinu MASA..... á öðrum heimilum. Inga var þó alltaf nokkuð sátt við gjörningin
kv.Addý

Kalla þig góða að þekkja spor söngskólagjörningsins á löngu færi :)
Væri alveg til í að vera laus við Maríu Björk, MASA og sparibaukinn Georg...verst hvað þetta svínvirkar á barnið!

Kannast við þetta. Skemmtilegast þegar Masi og Georg mæta á svæðið...
ps. þið eruð bara massa dugleg. Hang in there...
Sendu inn athugasemd