sunnudagur, apríl 29, 2007
Snilld dagsins
Langaði bara að deila snilli sem Steinunn Ólína leikkona skrifaði í Moggann í dag, en hún er nýbúin að eignast sitt þriðja barn (með mænurótardeyfingu): "Hvaða sadisti fann upp á því að það væri betra að konur gengju deyfingarlausar í gegnum fæðingar? Ég hugsa með hryllingi um fæðingar eldri dætra minna þar sem ég þrjóskaðist við að eignast börnin á sem náttúrulegastan máta. Þvílíkt bull. Það var kærkomið að fæða barn án þess að vera hálf meðvitundarlaus af kvölum."
Frískandi að heyra þetta frá konu sem hefur fætt börn án deyfingar. Yfirleitt finnst mér þær konur keppast við að sannfæra okkur deyfingaraumingjana um hvað þetta var yndislegt og lítið mál og frábær upplifun og bara alveg eins og amma gerði það og ég veit ekki hvað. Bara svona til að negla það inn hvað það sé lítill töggur í manni og sársaukaþröskuldurinn ekki þröskuldur heldur bara hola í gólfið.
Mín reynsla er sú að mænurótardeyfinginn breytti minni fæðingu úr algjörri pínu í bara nokkuð skemmtilega upplifun. Svæfingarlæknirinn sem deyfði mig er einn af fáum einstaklingum sem ég brosi alltaf þegar ég sé (þótt ég þekki hann ekki neitt) og langar alltaf að hlaupa í fangið á og faðma....og senda honum rauðvín öll jól...ja hérna!

Comments:
<< Home
Svo sammála! Sem kona sem hefur gengið í gegnum fæðingar með og án deyfingar. Skil ekki af hverju það ætti að vera eftirsóknarvert að fæða án hennar.
Áfram Steinunn Ólína!
Áfram Steinunn Ólína!
I do care to leave a comment: sammála líka! kveðjur frá konunni sem er að vinna með mágkonunni og kíkir stundum á skemmtilega bloggið hjá móðurinni... - þú þekkir mig ekkert en ég hef séð þig einu sinni í ótrúlega smart klæðnaði í Eymundsson.
Það liggur við að ég væri til í að ganga aftur í gegnum fæðinguna og með deyfingu í það skiptið...til að hafa samanburðinn.
Tékka á því næst ;)
Tékka á því næst ;)
Alveg sammála!
Ég mun sko pottþétt fá mér mænurótardeyfingu í næstu fæðingu. Við gætum alveg eins fætt í moldarkofa ef við fögnum ekki að það verða framfarir hvað varðar barnseignir!!!
Ég mun sko pottþétt fá mér mænurótardeyfingu í næstu fæðingu. Við gætum alveg eins fætt í moldarkofa ef við fögnum ekki að það verða framfarir hvað varðar barnseignir!!!
Stefni líka á endurteknar mænuróttardeyfingar og þá helst íklædd smart eiturgrænum satínsamfestingingi :)
Sendu inn athugasemd
<< Home