sunnudagur, mars 04, 2007
Skíðin komin aftur á hilluna
Komum frá Austurríki í nótt eftir bilaða flugferð þar sem Nína Þorbjörg vakti allan tímann þótt það væri hánótt hjá henni. Var hin versta ef það var eitthvað gefið í skyn að hún ætti kannski að fara að sofa og velti sér í miklum tryllingi á milli okkar Árna. Hún skipti 30 sinnum um stellingu á 5 mínútum...og svo hætti ég að telja. Fólkið í kringum okkur var orðið "smá" þreytt á stuðinu og þetta var komið út í að menn voru farnir að bjóða okkur áfenga blómadropa til að róa barnið (og stöðva hljóðmengunina).
Annars var skíðaferðin rosalega skemmtileg, við Árni Grímur komumst á skíði eins og við vildum alla dagana þar sem pabbi og mamma voru mjög dugleg að stússast með Nínu Þorbjörgu. Hún hagaði sér síðan eins og fyrirmyndarbarn í öllum máltíðum og leyfði okkur að borða þrí- og fjórréttað án mikillar fyrirhafnar öll kvöld. Algjör draumaferð sem sagt. Getum ekki beðið eftir að skella stelpunni á skíði um leið og aldur leyfir...
Fleiri myndir fljótlega? Meiri umfjöllun? Kannski.
Comments:
<< Home
Hæ hó!
Fleiri myndir! Meiri umfjöllun!
Hlakka til að heyra hvernig Nínan fílaði Bradwurst og Sauerkraut :)
Kveðja,
sú þrítuga.... (og ekki enn byrjuð að borða Súrkál!)
Fleiri myndir! Meiri umfjöllun!
Hlakka til að heyra hvernig Nínan fílaði Bradwurst og Sauerkraut :)
Kveðja,
sú þrítuga.... (og ekki enn byrjuð að borða Súrkál!)
Já, og hvar eru myndirnar??? Meiri umfjöllun, takk.
Til hamingju með afmælið, Ólöf. Ég er ekki heldur byrjuð á súrkálinu. Ekki viss um að hafa list á því fyrir the big 30. En Nínan hefur örugglega farið létt með það, ekki satt?
Sendu inn athugasemd
Til hamingju með afmælið, Ólöf. Ég er ekki heldur byrjuð á súrkálinu. Ekki viss um að hafa list á því fyrir the big 30. En Nínan hefur örugglega farið létt með það, ekki satt?
<< Home

