laugardagur, mars 10, 2007

 

Familie Sigurdsson í Austurríki

 
Maður verður að setja inn meiri skíðaumfjöllun þótt maður hafi nú svo sem ekki lofað neinu. Læt líka fylgja aðeins meira af myndum sem flestar voru teknar á Árnagemsa sem fylgdi með hvert sem við fórum. Ferðin var sem fyrr segir alveg meiriháttar og alveg eins og skíðaferðir eiga að vera, gekk út á skíði og að borða. Fínt fyrir okkur Árna að fá líka smá tíma saman, erum annars alltaf að vinna til skiptist og hittumst lítið. Komst að því að Árni er bara fínn gaur og skemmtilegt að spjalla við hann.
Pabbi og mamma fengu líka fullt af tíma með Nínu Þorbjörgu og virðast þau öll þrjú hafa farið vel út úr því. Voru saman í brekkunum og í fínu skíðagræjubúðunum (sem skvísunni fannst ekki leiðinlegt).
Annars gengur lífið bara sinn vanagang eftir heimkomuna, á enn eftir að taka upp úr töskunni og það þarf að gera 100 hluti á öllum vígstöðvum. Reyni samt að einbeita mér að Nínunni þegar hún er vakandi og fara eins mikið með hana út og ég get (enda leiðir það venjulega til almennilegs nætursvefns en ekki einhvers brölts og vesens). Fórum út að labba í dag og enduðum ferðina á Laufásborg þar sem Nína Þorbjörg sýndi ótrúlega hreyfifærni á leikvellinum. Er þessa stundina að jafna sig eftir fyrsta "íþróttaslysið" sitt, sprungna vör, en það var svo sem við því að búast þar sem hún leggur sig alla í þetta. Nýjasta nýtt er að labba sjálf upp tröppurnar á leikvellinum, taka síðan tilhlaup og hlaupa fram af þeim aftur. Gerir gjörsamlega ráð fyrir að maður sé til staðar þegar þetta hreystiverk fer fram. Eða heldur að hún geti flogið. Veit ekki alveg hvort er málið. Posted by Picasa

Comments:
Þú tekur þig ekkert smá vél út á skíðunum. Heyrumst kannski næstu helgi. Verð í bænum þá :)
 
Skemmtilegt review og myndir.. þetta eigum við alveg eftir að prófa, þ.e. skíðaferðir utanlands.... Ættum kannski að pússa helstu vankantana af skíðatækninni innanlands svona fyrst ;)
kveðja
Addý og co
p.s. fínustu myndgæði í símamyndunum.
 
Belti og axlabönd!
Sendi nú húsbóndanum kveðju í sms formi en hún virtist ekki fara á endastöð svo hérmeð er Árna Grími Sigurðssyni óskað til hamingju með 3 áratugi. Vel af sér vikið!
kveðja
Addý og co
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?