fimmtudagur, mars 30, 2006
Sólskynsskap
Æðislegt hvað svona almennilegt veður hefur góð áhrif á sálina. Manni finnst maður bara geta allt og ekkert verkefni vera of stórt til að maður rúlli því ekki upp. Vinnan á mánudaginn? Ekkert mál, takk. Ég sem var ekki einu sinni að meika það að hringja eitt skitið símtal í þjónustuver Orkuveitunnar í gær...
Hringdi í dag og lét ekki þar við sitja heldur hringdi bara á fullt af öðrum stöðum í leiðinni, bara til að skemmta sjálfri mér. Símafóbía hvað?
Læt flakka hér með hvað Nína Þorbjörg er búin að vera sæt undanfarið (sjá myndir).
Hringdi í dag og lét ekki þar við sitja heldur hringdi bara á fullt af öðrum stöðum í leiðinni, bara til að skemmta sjálfri mér. Símafóbía hvað?
Læt flakka hér með hvað Nína Þorbjörg er búin að vera sæt undanfarið (sjá myndir).
þriðjudagur, mars 28, 2006
Kjallarakaup
Jesss...skrifuðum undir kaupsamning í dag og teljumst nú eigendur kjallaraíbúðarinnar sem er undir okkur. Jessss....stóru leynikaupin loksins afstaðin! Þvílíkur munur að vera búinn að eignast svona svefnálmu sem mun þýða mjög svo aukið rými hérna á efri hæðinni. Ímyndið ykkur bara að búa tvö í 70 fm og svo bætist við 1 stk. 3,5 kg kríli með eftirfarandi fylgihluti: Vagn, kerru, bílstól, matarstól, ömmustól (x 2), burðarpoka (x 2), kommóðu, skiptiborð, rimlarúm, leikteppi, púsluteppi (x 2), kúluspilaturn, baðbala + grind, dótakörfu, útifatakörfu, krukkumatarkörfu, of-stóru-fata-kassa, of-litlu-fata-kassa, skiptitösku, heila hillu af smábarnabókum, skúffu af tuskudýrum, óhreinatauskörfu, bleyjur, bleyjupakkara og hillu af handklæðum og taubleyjum. Auk þess er á heimilinu maður með gítara (x 3), harmónikku, gítarmagnara (x 2), rafmagnsbassa, banjó (eða mandólín eða eitthvað), alls konar einhverja míkrófónastanda og nótnastatíf og hljómborðastatíf og hljómborð og pedalaborð og ég veit ekki hvað og hvað.
Okkar fyrsta verk verður að senda Nínu Þorbjörgu öfuga í eigið herbergi ásamt öllum hennar fylgihlutum (það er algjör þrautabraut að komast um íbúðina eins og er og ekki á færi nema al-allsgáðustu einstaklinga). Er farin að æsast mjög upp við tilhugsunina um stelpuherbergi sem er bleikara en bleikt og skreytt hátt og lágt með prinsessum og ballerínum og flugfreyjum og hárgreiðsludömum og bara öllu þessu stereótýpíska. Maður ætti kannski að telja upp á 10 og hugsa þetta svo upp á nýtt. A.m.k. erum við ekkert smávegis ánægð með viðbótina við yfirráðasvæðið okkar og ætlum strax að hefjast handa við framkvæmdir. Hver veit nema á endanum verði bara jafnvel matarboðafært hér á bæ...
fimmtudagur, mars 23, 2006
Frk. Dyntur 2006
Hömm...dóttir mín er ekki beinlínis fyrirsjáanlegasta mannvera sem hefur fæðst. Hún er sem sagt dyntótt eins og ég veit ekki hvað og það fer óeðlilega mikið í mínar fínustu stundum. Sem dæmi má taka að það er ómögulegt að spá um hvort eða hversu mikið af stoðmjólk hún vill drekka á hverjum tíma og aldrei er hægt að taka mið af neinni fyrri reynslu þar sem þetta breytist hraðar en framtíðarspár um íslenska hagkerfið. Í gær drakk hún 160 mL í síðdegissopanum og var enn þá svöng, í dag drakk hún 80 mL og vildi síðan bara borða boðskortið mitt á astma- og ofnæmisdaginn. Þetta leiðir til þess að ég hef hent lítra eftir lítra af stoðmjólkurafgöngum og krónurnar minar rúlla niður um niðurfallið í eldhúsvaskinum. Þá er nú betra að vera bara með barnið á brjósti þar sem þá hefur maður ekki hugmynd um hvað hún drekkur mikið hverju sinni og þess vegna engar áhyggjur heldur. Vandamálið með brjóstagjöfina er hins vegar það að ég hef neyðst til að draga úr henni eftir að barnið hætti að vilja annað brjóstið (dyntir, dyntir...). Er ekki alveg til í að vera með blússandi framleiðslu öðru megin en enga hinum megin...ekki alveg það glæsilegasta að vera með eytt B-skála brjóst og annað D-skála brjóst...eru framleiddir brjóstahaldarar fyrir svoleiðis?
miðvikudagur, mars 22, 2006
Öflug...
mánudagur, mars 20, 2006
Sykraðir dagar að baki
Einhver niðursveifla er í gangi þessa dagana í bloggmálum, enda nóg annað að gera. Helgin fór eins og hún lagði sig í einn stóran afmælisfögnuð þannig að maður er vel sykraður eftir þetta og líklega allar frumur líkamans samanklesstar í sýrópssulli (ótrúlegt hvað maður hefur það gott miðað við aðstæður). Fórum í Batman-afmæli hjá Degi frænda sem bar herðar (ekki höfuð) yfir aðra viðstadda íklæddur Batman vöðvabúningi. Kári mágur Árna Gríms varð fertugur og því fylgdu að sjálfsögðu líka hátíðahöld. Síðast en ekki síst varð Árni Grímur sjálfur 29 ára og því kominn hættulega nálægt ellimörkum...aðeins eitt ár til stefnu. Bíðum spennt eftir því hvað gerist að ári, hvort hann vakni ekki að morgni 18. mars með ístru og skalla og kolómögulegur í fótbolta. Fórum á Grillið í tilefni dagsins og fengum meiriháttar veitingar, upp úr mörgu góðu stóð æðisleg dádýrasteik og rauðvín að nafni Carmen (Chile, Shiraz) sem var ótrúlegt. Nína Þorbjörg er engu nær eftir þessa helgi og veit ekkert hvað var að gerast. Aðalmálið hjá henni þessa dagana er að hnoðast um, bolta- og klappleikir, að sitja (sem er endalaust áhugavert) og svo duddur. Hún er hins vegar verulega smeyk við iðnaðarmenn og er lengi lengi að jafna sig ef slíkir menn sjást. Hún borðar enn þá helst bara gulrætur og vekur eftirtekt hvar sem hún kemur fyrir heið-appelsínugulan litarhátt. Nefið er orðið svo appelsínugult að það er nánast sjálflýsandi. Við hliðina á henni lítum við foreldrarnir út fyrir að vera í besta falli gráblá á litinn. Ekki gott mál.
Síðan er ég farin að undirbúa endurkomu mína á vinnumarkaðinn eins og hægt er og er með mjög blendnar tilfinningar varðandi þessa yfirvofandi breytingu. Það verður örugglega gott að komast innan um fólk aftur, komast í smá fjarlægð frá bleyjurútínunni og upplifa sig aftur sem einhvers konar faglærðan einstakling. Á móti kemur að við Nína Þorbjörg höfum það sérlega gott hérna heima, maður er bara á sloppnum hálfan daginn og lítil keyrsla á hlutunum. Finnst ég líka ekki kunna neitt lengur og líður eins og mér verði hent út í djúpu laugina 1. apríl og verði bara í tómu rugli. Er þess vegna að rembast við að lesa þegar Nínan sefur og koma mér í gírinn með þetta helsta. Svo verður að fara að venja dömuna af brjósti helst í gær ef þetta á að gera sig. Nína Þorbjörg er reyndar sjálf búin að venja sig alveg af öðru brjóstinu (vill það bara ekki), þannig að það er bara eitt brjóst til stefnu.
Svo verður maður nú að enda þetta á smá skokkfréttum, enda greinilegur áhugi á slíkum fréttum fyrir hendi... Hef staðið mig nokkuð vel í skokkprógramminu, þótt afmælisholskeflan hafi sett strik í reikninginn. Stefni jafnvel á að setja mér einhver öflug markmið eins og kvennahlaup eða skemmtiskokk sumarið 2006. Væri ekki slæmt fyrir fyrrum sýrópslegna sætabrauðskellingu að slá í gegn í einhverju svoleiðis...
Síðan er ég farin að undirbúa endurkomu mína á vinnumarkaðinn eins og hægt er og er með mjög blendnar tilfinningar varðandi þessa yfirvofandi breytingu. Það verður örugglega gott að komast innan um fólk aftur, komast í smá fjarlægð frá bleyjurútínunni og upplifa sig aftur sem einhvers konar faglærðan einstakling. Á móti kemur að við Nína Þorbjörg höfum það sérlega gott hérna heima, maður er bara á sloppnum hálfan daginn og lítil keyrsla á hlutunum. Finnst ég líka ekki kunna neitt lengur og líður eins og mér verði hent út í djúpu laugina 1. apríl og verði bara í tómu rugli. Er þess vegna að rembast við að lesa þegar Nínan sefur og koma mér í gírinn með þetta helsta. Svo verður að fara að venja dömuna af brjósti helst í gær ef þetta á að gera sig. Nína Þorbjörg er reyndar sjálf búin að venja sig alveg af öðru brjóstinu (vill það bara ekki), þannig að það er bara eitt brjóst til stefnu.
Svo verður maður nú að enda þetta á smá skokkfréttum, enda greinilegur áhugi á slíkum fréttum fyrir hendi... Hef staðið mig nokkuð vel í skokkprógramminu, þótt afmælisholskeflan hafi sett strik í reikninginn. Stefni jafnvel á að setja mér einhver öflug markmið eins og kvennahlaup eða skemmtiskokk sumarið 2006. Væri ekki slæmt fyrir fyrrum sýrópslegna sætabrauðskellingu að slá í gegn í einhverju svoleiðis...
miðvikudagur, mars 15, 2006
Akkurru gerir ´ann þetta?
Af hverju eyðir Bloggerinn skemmtilegum bloggum um uppeldisaðferðir og mat á fegurð ungabarna á skalanum 1-10? Pólitískar ástæður???
Við munum gera aðra tilraun innan tíðar. Á meðan má fólk íhuga eftirfarandi: Hvernig skal koma duddu upp í sig þegar önnur dudda er þá þegar uppi í manni? Góð spurning.
Einnig fær afi Þórður stóra og góða afmæliskveðju, en hann er einn af mörgum marsafmælisbörnum í kringum okkur og hélt upp á daginn í gær.
miðvikudagur, mars 08, 2006
Smá mont...

Nína Þorbjörg sést hér sitjandi, smávegis árétting ef einhverjir eru vantrúaðir. Við héldum annars áfram í afmælishátíðarhöldum í gær, en að þessu sinni var það amma Þorbjörg sem átti afmæli. Höfðum það mjög huggulegt í Laxakvísl, enda heljarinnar köku- og vöffluhlaðborð á boðstólum. Með köku og kaffibolla í hönd fór síðan fram áætlunargerð fyrir sumarið, en stefnan er tekin á alvöru stórfjölskyldusólarstrandarsumarfrí. Er bara lúmskt ánægð með að hafa góða afsökun til að fara í rólegt frí á sólarströnd, kíkja í vatnsrennibrautagarða og tívolí, í staðinn fyrir að brölta í nepölskum fjallgörðum, hjassast upp perúskar fornmynjar eða þeysast um í síberískum hraðlestum. Ekki það að framangreint sé ekki freistandi...hef líka bara mjög gaman af því að hafa það notalegt undir sólhlíf með bók og bjór. Eða eðalvínglas úr Torres vínkjallaranum.
Svo verður maður að klykkja út með því að deila smávegis reynslu úr menningarlífinu sem manni tekst að grípa af og til:
Match Point: Já. Ég hafði mjög gaman af þessari mynd enda svæsinn Woody Allen aðdáandi. Heyrist menn annað hvort hata þessa mynd eða elska þannig að það er um að gera að sjá hana og mynda sér eigin skoðun.
Sjávarkjallarinn: Jáhá. Æðislegur veitingastaður, alveg á heimsmælikvarða (og fólk veit greinilega af því þar sem það var stappað út úr dyrum).

mánudagur, mars 06, 2006
Sportmæðgur
Jamm og jæja! Nú er Nína Þorbjörg barasta farin að sitja og það eru meira að segja nokkrir dagar síðan (rétt skal vera rétt). Þetta skapar óteljandi ný myndatilefni og auðvitað mikla bót á útsýni og aðgengi fyrir hana. Er algjör eldhugi og er mikið í því að henda sér í átt að hlutum sem hún hefur áhuga á, þannig að maður verður að hafa sig allan við að passa upp á að hún slengi sér ekki utan í eitthvað hættulegt. Vegna þessarar gríðarlegu orku sem dóttir mín virðist hafa og rækta hef ég ákveðið að fara að sprikla sjálf. Er búin að verða mér úti um mjög glæsilegt skokkprógramm og stefni á að kýla á það í kvöld (fyrsta kvöldið í milljón ár þar sem er hellirigning og rok). Er annars ekkert sérlega hrifin af því að skokka hérna í miðbænum, finnst maður vera aðeins of mikið í sviðsljósinu....þ.a.l. mun ég ekki hætta mér út fyrr en eftir myrkur og þá mjög dökklædd, ef ekki svartklædd.
fimmtudagur, mars 02, 2006
Kaupæði
Kaupæði með stóru K-ái hefur gripið um sig hér í húsinu (þ.e. í okkar íbúð). Smelltum okkur á forláta sófa um helgina, skrúfuðum þann gamla í sundur og sendum hann á haugana. Ég er svo tilfinninganæm manneskja að ég binst dauðum hlutum mjög sterkum böndum, ekki síður en þeim lifandi. Á vægast sagt erfitt með að henda og þess vegna er geymslan líka full af þvílíku og öðru eins dótaríi að slíkt hefur varla sést. Gömul bréf frá pennavinkonu minni síðan ég var 11 ára, barnatennur, gamli eldhússloppurinn hennar ömmu, stílabækur úr 7 ára bekk, gamla vekjaraklukkan sem pabbi og mamma áttu (sem hringir af og til í kassanum með svaka látum), ilmvatnsprufur frá sautjánhundruðogsúrkál og svo mætti lengi telja. Þess vegna var mjög erfitt að sjá á eftir gamla sófanum, þótt hann væri orðin sjúskaður og útældur (af Nínu Þorbjörgu), auk þess sem hann var farinn að framleiða einhverja torkennilega fýlu sem engin leið var að losna við. Þar með fór aðalsófinn hans Gísla Marteins í ruslið eftir góða nýtingu. Ég varð hins vegar að loka mig inni á baði á meðan Árni Grímur og sendibílstjórinn fjarlægðu hann, enda um mjög sorglega stund að ræða.
Þetta er nú svo sem ekki það eina sem hefur verið keypt í þessu kaupæði. Er komin með æði fyrir bakkelsi og rúlla Nínu Þorbjörgu með mér út í Bernhöftsbakarí á hverjum degi til að kaupa kaloríubombur. Þetta eru miklar gæðastundir núna í góða veðrinu og algjörlega nauðsynlegt að leyfa barninu að njóta þeirra með manni.
Árni Grímur leggur líka sitt af mörkum í kaupfjörinu, en hans kaup fara aðallega fram í gegnum netið. Þessu fylgir mikið flóð af pökkum, bréfum, tollskýrslum, símhringingum og tilkynningum og hefur gríðarlegur fjöldi aðila komið að þessum kaupum með einhverjum hætti. Þar má telja starfsmenn póstsins, TVG-Zimsen, DHL, USP o.fl. o.fl. Mjög atvinnuskapandi og jákvætt í alla staði.
Framtíðarmúsík er svo að grípa í skottið á bókamarkaðnum í Perlunni og er stefnan að byrgja sig upp af smábarnabókmenntum (og fá sér ís á eftir).
Að lokum má svo minnast lauslega á stóru leynikaupin, en þau eru svo háleynileg að þau verða ekki afhjúpuð að svo stöddu... Mikil spenna er þó í loftinu vegna þessa máls...
Síðan sendum við Nína Þorbjörg fjörkveðjur til Ólafar, fyrrverandi afmælisbarns og núverandi Akureyrings. Óskum þér góðs gengis í sjúkraflugvélinni :)









