þriðjudagur, ágúst 15, 2006
Stuðhelgi að baki
Tókst að komast austur fyrir fjall á sunnudaginn og eiga æðislegan dag í sveitinni á "ættarmóti" með Snæju frænku og co. Það veitti ekki af þar sem foreldrar fóru hamförum í skemmtanalífinu dagana á undan og voru í harðri samkeppni varðandi þynnku og svefnleysi. Árni Grímur náði þó öruggu forskoti á Gay pride kvöldinu og eiginlega ekkert hægt að deila um það. Nína Þorbjörg kíkti líka á Gay pride með mömmu og Fríðu, Mæju og Hólmfríði vinkonum og skemmti sér bara sérstaklega vel. Hitti Inga, Áslaug og Iðunni og Gunnu Dóru og Helgu Sólveigu...sem sagt fullt af litlum dömum í Gay pride gír. Endaði fjörið á Súfistanum útötuð í súkkulaðiköku og rjóma. Í sveitinni var svo steikjandi hiti og sól, léttvín, humar, lambagrillkjöt og ís. Ég brann öðru megin og Árni Grímur hinum megin. Í sveitinni var líka Margrét Mist frænka, en hún er einmitt að byrja í aðlögun núna í vikunni með Nínu Þorbjörgu hjá Þórunni dagmömmu. Munum örugglega tjá okkur um það á næstunni...
