fimmtudagur, ágúst 03, 2006
Sorglega Tjörnin og sumarið sem er búið
Byrjaði í sumarfríi 1. ágúst og sumarið virðist vera komið og farið síðan þá. Síðustu tveir dagar voru æðislegir í einu orði sagt og við Nína Þorbjörg nýttum þá í botn. Fórum í pikknikk á Austurvöll báða dagana og borðuðum flest allar máltíðir úti. Vorum duglegar að fá fólk með okkur í sólarsleikingarnar og ætlum að halda því áfram. Það er einnig velkomið að hafa samband við okkur ef menn hafa áhuga á að tölta um miðbæinn með polla í skónum og helbláa fingur...það er svona í spilunum fyrir afgang sumarsins að því er virðist.
Erum búnar að uppgötva andamömmu með heila 3 unga á tjörninni og kíkjum til hennar á hverjum degi. Mávarnir eru búnir að éta flest alla hina ungana, þannig að þessi mamma hefur greinilega verið útsmognari en hinar. Stemningin á Tjörninni er sem sagt sorgleg í meira lagi, fullt af stæltum og grimmdarlegum mávum með stélið sperrt og einstaka "barnlaust" andapar. Keypti brauð handa útsmognu andamömmunni og co. í dag og gaf þeim eins og ég gat án þess að laða mávagerið að. Nína Þorbjörg er ekki enn komin á það stig að gefa öndunum brauð heldur þarf hún sjálf að láta skutla í sig molum eins og endurnar. Verður verulega súr ef hún þarf að bíða lengi eftir að það komi að henni. Við lok brauðpokans var ég farin að vorkenna mávunum svo mikið að þeir fengu smá skorpur líka. Kannski bjargar maður nokkrum andarungum með því að splæsa brauði á mávana, þeim er nú líka vorkunn...öll sílin búin og svona...
Nína vill blogga og hér kemur hennar innlegg:
gb nv y7g hj gv
Síðan þarf maður að fara að hætta þessi, mín er orðin eðalsvekkt og gefur frá sér stríðsöskur og óþolinmæðishljóð. Ætlar svo að ögra mér með því að reyna að koma ofan í sig einu stk. fjöltengi. Ég sé við því og tek tengið úr sambandi...múhahaha.

Comments:
<< Home
Skora á þig að fá fyrstu bloggfærslu Nínu birta í Lesbók Morgunblaðsins, stúlkan er augljóslega mikið skáld!
Verðurðu ennþá í fríi á fimmtudag og föstudag? Ég er að koma í bæinn væri meira en til í koma með ykkur mæðgum að gefa öndunum :)
1. Ég er algjörlega á því að þetta eigi heima í Lesbókinni, mundi áreiðanlega vera með því betra sem þar hefur birst í lengri tíma...
2. Er í fríi allan ágúst! Endilega kíktu með okkur í andaleiðangur.
Sendu inn athugasemd