miðvikudagur, júlí 26, 2006

 

Rúllandi á gólfinu? Eða ekki?

 
Hef verið fjarverandi á ráðstefnu í Boston og Árni Grímur er búinn að vera duglegur að halda uppi merkjum síðunnar á meðan. Eins og sést á fjölmörgum færslum hans hér að neðan. Eða bara ekki. Boston var annars fín, nema það var allt of heitt þannig að Frk. Íslendingur, sem man ekki lengur hvernig sólin lítur út, fékk algjört áfall. Hraktist öfug inn í loftkældar verslunarmiðstöðvar og ráðstefnusali og hélt þar til mest allan tímann. Lenti í svakalegum Nínusöknuði þegar á leið ferðina (sem var heilir 7 dagar) og var orðin alveg viðþolslaus þegar ég komst loksins heim. Nínan var einmitt í fyrstu næturpössuninni sinni og ekki einu sinni heima til að taka á móti mér. Þvílíkur unglingur!
Annars get ég ekki beðið lengur með stóru fréttirnar: NíNA ÞORBJÖRG ER BARA FARIN AÐ SLEPPA SÉR OG HEFUR ÞEGAR ÞETTA ER RITAÐ GENGIÐ 4 SKREF ÓSTUDD. Takk. Geri aðrir betur. Svo er hún komin með krullur í hárið sem eru æðislegar og er algjör prakkari og brallari. Með Barbapabbasnuð. Og sólgleraugu. Posted by Picasa

Comments:
Til hamingju með fyrstu skrefin, litla krútt!

Eruð þið til í að setja inn myndir af krullunum :)
 
Takk fyrir það!
Reynum að setja inn mynd af krullum um leið og mynd næst þar sem þær koma nógu vel fram. Erum mjög vandfýsin á myndir sko.
Súperkveðjur til Stokkhólms! :)
 
Til hamingju með stelpurófuna. Hún er mögnuð. Við tókum einmitt nýrómantískt Þingholtakvöld um daginn, þegar Inga bauð sér alls óvænt í næturgistingu hjá ömmu sinni og afa ( Þingholtin njóta sín ekki eingöngu á sunnudagsmorgnum.....). Gerðum snarheiðarlega tilraun til að kíkja við hjá ykkur.. en ollum í staðin rúmruski hjá Nínu Þoddn og ömmu hennar. Pabbinn í fótbolta og mamman í USA....
Heyrumst síðar
Addý
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?