fimmtudagur, maí 04, 2006

 

Stóra barnafatamálið 2. hluti

Hver er búinn að eyða öllum morgninum í að spjalla við fólkið á deildinni og uppskera mikil notalegheit fyrir vikið? Fyndið að hugsa til þess að flestir hér voru á aldrinum 55-70 ára þegar ég fæddist...Svo er maður eitthvað að vilja upp á dekk og þykjast vera agalega veraldarvanur. Er barasta í sambúð með eina 8 mánaða, svakaleg lífsreynsla náttúrlega!
Sit svo hér og fylgist með krílunum á leikskólanum fyrir neðan og langar þvílíkt að hoppa út í góða veðrið með þeim. Tala ekki um krakkana sem eru í fótbolta á Landakotstúninu...fúlt hvað maður vissi ekkert hvað maður hafði það gott þegar maður var sjálfur svona lítill. Alltaf að rembast við að fá að vera inni í fímínútum og falsaði glæsilega miða frá foreldrunum í þeim tilgangi (miða með minni skrift nema ég bætti svona krúsidúllusnúðum á endann á öllum stöfunum til að láta þetta líta fullorðinslegar út).
Verð þó að segja að eitt slær mig þegar ég er að fylgjast með leikskólabörnunum. Það er undantekningalaust hægt að sjá hver er strákur og hver er stelpa, þeir eru allir bláir og þær allar bleikar/rauðar. Er eiginlega að upplifa þetta eins og út úr einhverri vísindaskáldsögu þetta er svo sérkennilegt þegar maður spáir í því. Af hverju er kynferði það sem við skilgreinum okkur fyrst og fremst út frá? Af hverju eru ekki allir svarthærðir í svörtu, rauðhærðir í rauðu...eða allir fæddir í janúar í hvítu, febrúar í silfurlituðu... Skil þetta ekki alveg! Hvað ætla leikskólakennararnir að gera ef ég smelli Nínu Þorbjörgu bara í gulan pollagalla...þori varla að hugsa þá hugsun til enda það yrði svo svakalegt :)

Comments:
Nákvæmlega, hvað gerðist? Hitti dagmömmu um daginn og hún sagði þjóðbúning íslenskra ungbarna vera 66° flís-outfitt. Neita að taka þátt í þessari bleiku/bláu/flís vísindaskáldsögu.
 
Sindri Dagur hefur átt 2 sett af regnfötum um ævina - bæði fagurgræn! Hann hefur lifað það af í sínum leikskóla;-)

:-)Skelltu stúlkunni endilega í gul ef þú finnur þau einhvers staðar..
 
Hvernig væri að strákaforeldrar tækju sig til og skelltu strákunum í eins og eina bleika flík?
 
Sonur minn segist ekki vilja vera í prinsessulit þa. hann er ekki til í þetta:-)

Annars er það til vansa hvað strákaföt geta verið leiðinleg á litinn - grá og svarblá..ojj. Hverjum dettur í hug að klæða stelpur í svona ljóta liti?
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?