þriðjudagur, maí 02, 2006
Sloppin...og vonandi með geðheilsuna
Þvílíkur dagur í dag! Var að byrja að vinna á nýjum stað, Landakoti, og munurinn! Í síðasta mánuði borðaði maður ekki í vinnunni, fór ekki á klósettið, hringdi aldrei heim í Nínuna, fór aldrei á netið, fleytti hlutunum áfram á því allra nauðsynlegasta og kom heim alveg búinn með píp, klið, garg og skruðninga í eyrunum. Í dag lifði ég í vellystingum, fékk mér spítalakaffi, tók statusinn á Árna Grími (tvisvar) og kíkti á mbl.is. "Hvað er eiginlega að í hausnum á honum Tom Cruise?" spyr fréttaspekingurinn ég. Ég tók langt og gott viðtal við eldri konu sem man tímann áður en sýklalyfin komu....þvílíkt ráðaleysi sem fylgdi því! Og, rosalega höfum við í raun yfir litlu að kvarta í nútímanum, a.m.k. tæki ég vatnsveitu og sýklalyf fram yfir flatskjái og ferðir til Kanarí.
Nína Þorbjörg er bara hress og er að mundast við að segja mamamama og babababa....veit held ég samt ekki alveg hvað þetta þýðir, finnst bara flott að búa til ný hljóð (segir líka bara mamama þegar hún er yfirdrifið fúl á skiptiborðinu...trúi því ekki að hún sé að ásaka mig eitthvað svona beint og persónulega). Í gærkvöldi neitaði hún að láta nokkuð inn fyrir sínar varir nema bananastöppu með súkkulaði og rjóma (baráttuhugur í minni í tilefni 1. maí). Maður má fara að vara sig, gleymdi meira að segja að "bursta" framtennurnar flottu á eftir.

Comments:
<< Home
jæja, bara byrjuð í bananasplittinu! góð!
landakotið er massa kósí. engin vannæring í gangi þar, alltaf morgunverður og hádegisverður. bráðamóttakan er söm við sig.... höldum okkur þó enn medicine megin, en rétt svo. vonum að þið séuð hressar, aldrei að vita nema maður plati ykkur í labb/löns um helgina?
landakotið er massa kósí. engin vannæring í gangi þar, alltaf morgunverður og hádegisverður. bráðamóttakan er söm við sig.... höldum okkur þó enn medicine megin, en rétt svo. vonum að þið séuð hressar, aldrei að vita nema maður plati ykkur í labb/löns um helgina?
Tom Cruise er bara svo mikið að rembast við að vera í fréttunum á hverjum degi!
Nínan er bara nautnaseggur eins og mamman ;-)
Sendu inn athugasemd
Nínan er bara nautnaseggur eins og mamman ;-)
<< Home

