laugardagur, apríl 08, 2006

 

Að hrökkva í gang...

Hefur einhver áhuga á myndalausu röfli frá mér? Ef svo er þá ætla ég aðeins að tjá mig...
Er í vinnunni, á helgarvakt, og aldrei þessu vant er bara nógu rólegt til að setjast niður og tölvast. Ég er orðin miklu sprækari, þótt það komi tímabil þar sem ég er alveg frosin og geyspa út í eitt. Já, og geri alls konar hugsunarlausar vitleysur eins og stafsetningarvillurnar í fyrri færslum bera glögglega með sér. Finnst ég samt vera batnandi manneskja í heildina...enda að ná alveg samfelldum 6 klst. í svefn á hverri nóttu. Aldrei hefði ég trúað að mér mundi einhvern tíman finnast það lúxus!
Nína Þorbjörg er hægt og rólega að reyna að venjast því að drekka ekki á nóttunni og hefur verið mun meðfærilegri heldur en fyrstu nóttina (sem BETUR fer...annars hefði maður nú orðið að íhuga alvarlega að endurhugsa þessi vinnumál alveg frá grunni). Hún sýnir samt svakalegan aðskilnaðarkvíða og er alltaf ofsalega glöð að sjá mig þegar ég kem heim á daginn. Svo má maður ekki bregða sér í næsta herbergi þá er hún farin að hágráta. Svolítið erfitt að horfa upp á þetta...en hún hefur pabba sinn nú! Ég er síðan sem fyrr segir að vinna frá 9-21 í dag og á morgun, þannig að ég hitti hana rétt til að kyssa hana góða nótt á kvöldin. Búhúhú....hefði ekki trúað því fyrir fram hvað maður getur saknað þessara kríla mikið!

Comments:
þú ert rosa dugleg og nú eru sem betur fer að koma nokkrir frídagar:-)
knús!
 
Tek undir með Lindu, þú ert algjör forkur, sendi þér nokkrar kaloríur í pósti til hressingar.
Erum nokkuð frosin fjölskylda í dag eftir næturflug. EyLo búinn að missa 2 kg eftir veikindi síðustu viku, og búinn að missa sínar djúsíustu fellingar. Nú verður hafist handa á fullu við að fita barnið ;) Helgó og félagar
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?