sunnudagur, apríl 16, 2006
Gleðilega páska!
Páskadagur runninn upp og maður á leiðinni að fá sér einhvern morgunmat til þess að páskaeggið fari ekki beint í tóman maga. Nína Þorbjörg fær líka páskaegg...en bara til að skoða í plastinu. Síðan ætla foreldrar að sjá um afganginn. hgkhpgoglihy0h9yulppi (Nína Þorbjörg hafði þetta um málið að segja, augljóslega ekki alveg sátt). Annars eru mikil rólegheit í gangi á þessum bæ, enda litlan með fyrsta hita ævinnar. Hún er búin að vera með þennan hita og tilheyrandi pirring í 3 daga, en annars er ekki að sjá að það ami neitt að henni. Sem sannir læknaforeldrar höfum við samt dælt í hana parasetamóli sem virðist líka gera mjög góða hluti. Ég er enn að pússla mér saman eftir þessa vinnutörn og er búin að njóta þess að skola úr mér þreytunni með bjór og góðum mat í boði foreldra. Höfum varla komist út úr húsi vegna hitans í stelpunni...tókum einn 3 mínútna göngutúr í Nauthólsvík fyrir veikindi, en þurftum frá að hverfa vegna kulda og roks (svaka harka). Síðan höfum við verið að kíkja á heimabíómyndasafnið, sáum Capote og Munich (þ.e. fyrri helminginn, hættum vegna skyndilegrar þreytu). Vonast til að maður fari nú að hrista af sér slenið fljótlega og gangi þá jafnvel svo langt að heyra í vinum og kunningjum...
Þangað til er stefnan tekin á að missa sig í smá súkkulaði trylling...sem er nú ekkert sérstakt tiltökumál fyrir manneskju sem tryllist á þennan hátt nánast daglega.
Comments:
<< Home
Gleðilega páska!!
Búin að vera svipuð stemming hér, mínus hita. Vaktir til skiptis og lítið að gerast sökum þess. Heyrumst bráðlega.
Kveðjur frá lúbbum
Sendu inn athugasemd
Búin að vera svipuð stemming hér, mínus hita. Vaktir til skiptis og lítið að gerast sökum þess. Heyrumst bráðlega.
Kveðjur frá lúbbum
<< Home

