laugardagur, apríl 01, 2006
Aðalstuðið: Laugardagskvöld í Þingholtunum
Held að ég sé orðin að hinni örgustu húsmóður. A.m.k kom það upp í hugann núna í kvöld, þ.e. kl. 21:35 á laugardagskvöldi þar sem ég er stödd við uppvask í eldhúsinu undir glymjandi stuðtónum Bylgjunnar. Hvernig gat þetta gerst svona hratt? Hélt að ég ætti nokkur ár eftir í þennan pakka...
Áhyggjufullir geta þó glatt sig við þá staðreynd að þessi Bylgjuhlustandi, uppvaskandi húsfreyja á kaldan bjór í ísskápnum og Desperate Housewives í tölvunni (OK, kannski engin svakaleg huggun, en maður reynir).


