mánudagur, apríl 24, 2006
8 mánaða og útsmogin
8 mánaða afmælið rann upp í gær og afmælisgjöfin var eitt stk. bólusetning í dag. Sumir eru alveg búnir að læra að þetta er ekki málið og létu hressilega í sér heyra á heilsugæslustöðinni. Nýjustu tölur:
Þyngd: 9600 g
Lengd: 72 cm
Höfuðmál: 44 cm
Svo er frökenin búin að læra fyrsta trixið sitt, þ.e. að vinka bless. Það er alveg ótrúlega fyndið hvað hún er ánægð með sig í hvert skipti og fer að skellihlæja á eftir.
Við og krílanínan erum öll bullandi kvefuð og ég hef síðan dreift þessum eldhressu sýklum í vinnunni í dag. Mjög góður markhópur fyrir sýkla þar á ferð, sjúklingar bráðamóttökunnar og hjúkkurnar sem eru á leiðinni í frí til útlanda saman. Mega búast við að verða nefmælt og rauðeygð innan tíðar...
Smá nöldurhornsinnslag í lokin: Þoli eiginlega ekki hvað íslenskt kvenfólk getur verið í mikilli hjarðmennskustemningu. Sem dæmi má taka að það kom tilkynning í fjölmiðlum í vetur að í sumar yrði málið að vera í hvítum, þröngum gallabuxum. Þótt slíkar gallabuxur hafi talist viðbjóður með ógeði í mörg, mörg ár þá eru skvísur bæjarins farnar að sjást í þessu í hrönnum. Af því að einhver sagði að það væri flott sko.....!!!!????
Comments:
<< Home
Ég er orðin rauðeygð og nefmælt skal ég segja þér. Ég hefði ekki átt að segja að ég yrði aldrei veik. Ég held meira að segja að ég sé með hita en það hefur ekki gerst síðan ég var unglingur.
Fyrst skilur maður stundum ekki tískuna en eftir smá tíma er maður alveg búinn að fatta hvað þetta er kúl;-) :-D
(tek það fram að mig langar ekki í einar hvítar..greinilega ekki góð tískuvitund þessa dagana!)
ps.Tvíburarnir, vinir SDS, eru búnir ap vera veikir þa. ég hef ekki getað spurt pabba þeirra um stigann en geri það við fyrsta tækifæri.

Mamma hennar Nínu Þorbjargar er skemmtilegur penni (eða pikkari)! Mágkona mömmunnar benti mér á þessa síðu, á sko einn þriggja mánaða sjálf. En hérna, eee, á ekkert að fara að skrifa um hina miklu togstreitu og sálarkreppu sem fylgir lokum brjóstagjafar?
Og veistu hvað er alls ekki kúl? Að vera að hjóla á nýja fína fjallahjólinu sínu sem er ekki með brettum í nýju hvítu buxunum sínum í rigningu og drullu.
Sá eina unga stúlku úti að hjóla áðan og hvað sú á eftir að verða hissa þegar hún kemur heim. Vona alla vega að hún hafi verið á heimleið en ekki til vinkvenna sinni að sýna nýju buxurnar. Ég átti virklega bágt af hlátri.

Til hamingju með strákinn Rósa! Stefni á að koma þessum brjóstagjafarpistli á netið þegar ég hef jafnað mig af togstreitunni og söknuðnum sem heltekur mig enn þá ;)
Kannski maður fari svo bara að skella sér á svona hvítar buxur, girði þær ofan í stígvélin en sleppi því að skella sér á bak fjallahjóls...
Sendu inn athugasemd
Kannski maður fari svo bara að skella sér á svona hvítar buxur, girði þær ofan í stígvélin en sleppi því að skella sér á bak fjallahjóls...
<< Home