mánudagur, mars 20, 2006

 

Sykraðir dagar að baki

Einhver niðursveifla er í gangi þessa dagana í bloggmálum, enda nóg annað að gera. Helgin fór eins og hún lagði sig í einn stóran afmælisfögnuð þannig að maður er vel sykraður eftir þetta og líklega allar frumur líkamans samanklesstar í sýrópssulli (ótrúlegt hvað maður hefur það gott miðað við aðstæður). Fórum í Batman-afmæli hjá Degi frænda sem bar herðar (ekki höfuð) yfir aðra viðstadda íklæddur Batman vöðvabúningi. Kári mágur Árna Gríms varð fertugur og því fylgdu að sjálfsögðu líka hátíðahöld. Síðast en ekki síst varð Árni Grímur sjálfur 29 ára og því kominn hættulega nálægt ellimörkum...aðeins eitt ár til stefnu. Bíðum spennt eftir því hvað gerist að ári, hvort hann vakni ekki að morgni 18. mars með ístru og skalla og kolómögulegur í fótbolta. Fórum á Grillið í tilefni dagsins og fengum meiriháttar veitingar, upp úr mörgu góðu stóð æðisleg dádýrasteik og rauðvín að nafni Carmen (Chile, Shiraz) sem var ótrúlegt. Nína Þorbjörg er engu nær eftir þessa helgi og veit ekkert hvað var að gerast. Aðalmálið hjá henni þessa dagana er að hnoðast um, bolta- og klappleikir, að sitja (sem er endalaust áhugavert) og svo duddur. Hún er hins vegar verulega smeyk við iðnaðarmenn og er lengi lengi að jafna sig ef slíkir menn sjást. Hún borðar enn þá helst bara gulrætur og vekur eftirtekt hvar sem hún kemur fyrir heið-appelsínugulan litarhátt. Nefið er orðið svo appelsínugult að það er nánast sjálflýsandi. Við hliðina á henni lítum við foreldrarnir út fyrir að vera í besta falli gráblá á litinn. Ekki gott mál.
Síðan er ég farin að undirbúa endurkomu mína á vinnumarkaðinn eins og hægt er og er með mjög blendnar tilfinningar varðandi þessa yfirvofandi breytingu. Það verður örugglega gott að komast innan um fólk aftur, komast í smá fjarlægð frá bleyjurútínunni og upplifa sig aftur sem einhvers konar faglærðan einstakling. Á móti kemur að við Nína Þorbjörg höfum það sérlega gott hérna heima, maður er bara á sloppnum hálfan daginn og lítil keyrsla á hlutunum. Finnst ég líka ekki kunna neitt lengur og líður eins og mér verði hent út í djúpu laugina 1. apríl og verði bara í tómu rugli. Er þess vegna að rembast við að lesa þegar Nínan sefur og koma mér í gírinn með þetta helsta. Svo verður að fara að venja dömuna af brjósti helst í gær ef þetta á að gera sig. Nína Þorbjörg er reyndar sjálf búin að venja sig alveg af öðru brjóstinu (vill það bara ekki), þannig að það er bara eitt brjóst til stefnu.
Svo verður maður nú að enda þetta á smá skokkfréttum, enda greinilegur áhugi á slíkum fréttum fyrir hendi... Hef staðið mig nokkuð vel í skokkprógramminu, þótt afmælisholskeflan hafi sett strik í reikninginn. Stefni jafnvel á að setja mér einhver öflug markmið eins og kvennahlaup eða skemmtiskokk sumarið 2006. Væri ekki slæmt fyrir fyrrum sýrópslegna sætabrauðskellingu að slá í gegn í einhverju svoleiðis...

Comments:
Ég hlakka til að fá Steinkuna aftur á LSH - ég er búin að vera hálflonely í matsalnum sko.... :)
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?