mánudagur, mars 06, 2006

 

Sportmæðgur

Jamm og jæja! Nú er Nína Þorbjörg barasta farin að sitja og það eru meira að segja nokkrir dagar síðan (rétt skal vera rétt). Þetta skapar óteljandi ný myndatilefni og auðvitað mikla bót á útsýni og aðgengi fyrir hana. Er algjör eldhugi og er mikið í því að henda sér í átt að hlutum sem hún hefur áhuga á, þannig að maður verður að hafa sig allan við að passa upp á að hún slengi sér ekki utan í eitthvað hættulegt. Vegna þessarar gríðarlegu orku sem dóttir mín virðist hafa og rækta hef ég ákveðið að fara að sprikla sjálf. Er búin að verða mér úti um mjög glæsilegt skokkprógramm og stefni á að kýla á það í kvöld (fyrsta kvöldið í milljón ár þar sem er hellirigning og rok). Er annars ekkert sérlega hrifin af því að skokka hérna í miðbænum, finnst maður vera aðeins of mikið í sviðsljósinu....þ.a.l. mun ég ekki hætta mér út fyrr en eftir myrkur og þá mjög dökklædd, ef ekki svartklædd.

Comments:
Go for it girls! Ég hlakka sjálf til að fara að taka á því í Laugum á morgunn eftir langt hlé:-)
 
Farðu bara varlega svona dökkklædd...Maður bölvar oft í hljóði endurskinslausum skokkurum sem birtast skyndilega fyrir framan bílinn.
 
Góður punktur, maður verður að vara sig þegar maður er svona skuggalegur.
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?