miðvikudagur, mars 15, 2006

 

Akkurru gerir ´ann þetta?

  Posted by Picasa
Af hverju eyðir Bloggerinn skemmtilegum bloggum um uppeldisaðferðir og mat á fegurð ungabarna á skalanum 1-10? Pólitískar ástæður???
Við munum gera aðra tilraun innan tíðar. Á meðan má fólk íhuga eftirfarandi: Hvernig skal koma duddu upp í sig þegar önnur dudda er þá þegar uppi í manni? Góð spurning.
Einnig fær afi Þórður stóra og góða afmæliskveðju, en hann er einn af mörgum marsafmælisbörnum í kringum okkur og hélt upp á daginn í gær.

Comments:
Hæ hó!

Ólöf Akureyringur sendir góðar kveðjur í höfuðborgina.
Góð Nína Þorbjörg - þú tekur þig vel út í sitjandi stöðu!

Annars vona ég að heilsa móðurinnar sé í góðu standi eftir afmælismaraþon og bakkelsismánuð mikinn :-)
Það hefur annars grunsamlega lítið heyrst síðustu daga um nýtilkominn skokkáhuga...

Annars er það helst að frétta héðan að í gær sást til vakthafandi sjúkrafluglæknis í 28 m hæð (þ.e. í slökkvibílskörfunni). Var hún íklædd slökkiliðsbúning og með gulan brunahjálm á höfði...
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?