þriðjudagur, febrúar 21, 2006
Framfarir, uppgötvanir og alls konar
Manni finnst bara orðið stutt í að Nína Þorbjörg fari að flytja að heiman, hún er orðin eitthvað svo mikil risaskvísa. Sat með mér í morgun og fékk Cheerio´s bita, klædd í svartar "yoga-buxur". Tók sig reyndar til og ældi á "yoga-buxurnar" og svelgdist á Cheerio´sinu...en, þetta er allt að koma. Hún er líka alveg að fara að geta setið sjálf, eyðileggur það bara mest fyrir sjálfri sér með því að reyna alltaf að standa upp (nennir ekki að staldra við á þessu asnalega set-millistigi). Hef gert í því að hrósa henni alveg rosalega þegar hún stendur upp og hún er STOLT af sjálfri sér við þessar aðstæður, takk fyrir. Brosir eyrna á milli.
Nýjustu uppáhöldin: Að horfa á mömmu vaska upp. Dagblöð, plöst og bréf utan af matvælum. Cheerio´s kassar + innihald þeirra. Að garga.
Nýjustu ekki-uppáhöld: Perur, epli og apríkósur (þvílíkt og annað eins ógeð). Eldhúsrúlla (festist við tunguna þegar maður reynir að borða hana).
Meðmæli dagsins: 1. Grasið á Bjarkargötunni. Gengum þarna mæðgurnar um daginn og uppgötvuðum fagurgrænt gras með ekta fínni graslykt og öllu sem góðu grasi tilheyrir. Áfram gras. 2. Lífið í undirgróðrinum. Duttum niður á að horfa á David Attenborough lýsa lífi skordýranna á RÚV í gærkvöldi. Ekki missa af þessu! Í alvöru... 3. Kaffi kaffi kaffi. Eina fíknin sem ég leyfi mér með barn á brjósti (f.u. einstaka lítinn bjór, en það má ekki hafa hátt um það). Fæ rosalegt stuðkikk úr kaffinu og helli núna upp á á hverjum degi (þurfti að byrja á að þurrka rykið af kaffikönnunni eftir laaanga vannýtingu). Kaffinu fylgir líka æðislega heimilislegur ilmur sem fyllir íbúðina. Þessi ilmur + Fréttir á Rás 1 = Heimili.
Comments:
<< Home
sammála með kaffið. mínar mestu rólegheitastundir sem heimavinnandi húsmóðir voru yfir kaffibolla og mogga meðan barnið svaf. sakna góðs kaffis....
Sendu inn athugasemd
<< Home

