mánudagur, febrúar 27, 2006
Fæða og fjör
Það hefur verið heilmikið fjör á heimilinu frá síðustu færslu. Skruppum á Food and Fun hátíðina að vanda og að þessu sinni var borðað á Vox. Maturinn var nokkuð góður en virtist hins vegar hafa verið settur í gegnum smækkara, allt var í eins konar mýflugumynd. Nína Þorbjörg var á heimavelli og afi Sigurður var hjá henni meðan foreldrar borðuðu míní-matinn. Allt gekk vel þar til frúin var orðin svöng og reynt var að gabba ofan í hana smá stoðmjólk. Stoðmjólk er komin á ekki-í-uppáhaldi listann, sem bara lengist og lengist með degi hverjum. Er orðin frekar örvæntingarfull yfir þessu, var svo mikið að vona að stoðmjólkin gæti komið í staðinn fyrir mína eigin framleiðslu stöku sinnum...dáldið bindandi að þurfa alltaf að vera til staðar á 2-3 klst. fresti dag og nótt. Kvarti kvart. Meira kvart.
Fórum síðan í þrefalt þrítugsafmæli um helgina og skemmtum okkur konunglega. Ákváðum að skipta kvöldinu upp og skiptast á að passa og tjútta. Þetta fyrirkomulag reyndist sérstaklega vel, mun betra en að sitja bæði súr heima.
Síðan má ekki gleyma að hrósa og hampa barninu, til þess er þetta blogg nú einu sinni. Hún er sem sagt bara alveg að fara að sitja eins og glöggir menn hafa líklega séð á meðfylgjandi mynd. Vantar bara rétt herslumuninn. Er viss um að drottningin verður ánægð þegar þessum áfanga er náð. Er orðin svo hundleið á að liggja að það hálfa væri nóg...tekur dagleg dramaköst yfir þessum leiðindum...
