þriðjudagur, febrúar 14, 2006

 

Enga vesæla rómantík í dag, takk.

 

Í dag er Valentínusardagurinn og öllum er sama, a.m.k. öllum á þessu heimili. Árni Grímur er vanur að fá veglegar gjafir í tilefni bóndadagsins, en þennan dag látum við alveg eiga sig enda augljóslega fundinn upp af gróðapésum (eins og maaargoft hefur verið bent á). Endilega ekki falla í þá aumu gildru að vera notalegur við makann í dag! Verð reyndar að rifja upp upplifun mína af þessum degi þegar ég var búsett í Chicago, USA. Það var verulega súrrealískt að sjá svörtu harðnaglana í neðanjarðarlestinni (án fordóma, þá bara verður að segjast að í þessu tilfelli voru þeir svörtu mestu naglarnir) sitja prúða og stillta með hjartalaga gasblöðrur og stóra, mjúka, ljósbleika kærleiksbangsa í fanginu á leið að gleðja elskuna sína. Óborganlegt alveg...
Blogg dagsins er sem sagt ekki helgað Valentínó, heldur Jens bróður sem á afmæli í dag. Til hamingju! Sendum ljósbleikar og ofurmjúkar afmæliskveðjur til Nýja Sjálands! Jens virðist a.m.k. hafa verið þægur og góður á árinu ef marka má veðrið...bara enn þá sól og klukkan að verða 18. Takk Jens. Posted by Picasa

Comments: Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?