laugardagur, febrúar 11, 2006
Blogg, bloggsins vegna
Höfum ekkert stórkostlegt fram að færa, langaði bara að láta ljós mitt skína. Dagurinn í dag var einn af þessum góðu dögum þar sem maður fær smá sólarglætu inn í grámygluna sem annars ræður ríkjum. Við Nína Þorbjörg fórum í meiriháttar göngu í Fossvoginum og....það var ekki neins slags úrkoma, ekki rok, ekki frost, ekki skýjað...sem sagt nær óhugsandi aðstæður á þessum tíma árs. Nína Þorbjörg hefur aldrei komist í eins mikið návígi við sólina áður og pírði augun eins og henni væri borgað fyrir það. Annars er hún alltaf með sama svipinn í göngutúrum og heldur honum þangað til hún er tekin úr vagninum. Þetta er svona eiturskarpt, starandi augnaráð og stútur á munni. Ekki möguleiki að hrista upp í henni og fá fram einhver svipbrigði.
Plúsar dagsins: Sólin, lognið og Cloudy bay hvítvín (nýsjálenskur eðalgripur).
Mínus dagsins: Mjög misheppnuð tilraun til að sjóða og stappa rúsínur. Bara hýði og ekkert alvöru innihald. Ekki reyna þetta.