fimmtudagur, janúar 05, 2006

 

Farin að kannast aftur við sjálfa mig...

 

Fyndið hvað eitt stykki meðganga getur haft mikil áhrif á líkamsímyndina manns (svo maður fari nú út í smá feminískar spekúlasjónir). Ég og Árni Grímur vorum að eignast barn saman í ágúst eins og lesendur síðunnar vita líklega...hann missti eina viku úr fótboltanum af þessum sökum, ég missti ca. eitt ár úr badmingtoninu! Þessi pæling kom nú bara til af því að ég var að fara í fyrsta skipti í badmington í dag í laaaangan tíma og finnst ég LOKSINS vera orðin ég sjálf aftur (f.u. að vera reyndar enn dáldið mjólkurbú). Held að ég verði að mega lýsa ánægju minni með að vera að verða eðlileg og engin af stærri áhyggjunum í kringum þetta allt rættist. Í lok meðgöngunnar var ég nefnilega komin með bjúg út um allt, háan blóðþrýsting, grindargliðnun og hætt að passa í skóna mína (sem var sérlegt áhyggjuefni þar sem ég nota nú þegar skó númer 41 og sá þannig fram á að ganga í karlaskóm það sem eftir væri). Einnig var ég orðin 89 kg (þori að segja frá þessu núna þar sem ég er ekki alveg svona þung lengur) og þar með þyngri en minn stælti sambýlismaður. Múhahaha, skelfilegt að sjá kílóin hrannast upp á ógnarhraða á meðgöngunni! Eftir fæðinguna var maður síðan með slit á báðum lærum, maga eins og jarðaberjahlaup og passaði áfram bara í óléttufötin. Sá fram á að fara aldrei framar í sund eða háhælaskó og þurfa að endurnýja fataskápinn frá A til Ö. Svo bara einhvern veginn lagaðist þetta og maður meira að segja byrjaður í badmington eins og ekkert hafi í skorist. Sem sagt maður er að smella saman og boðskapur dagsins því uppörvandi þrátt fyrir allt! Posted by Picasa

Comments:
Ótrúlegt hvað badminton getur gert fyrir sálartetrið ; )
.... það er voðalega gott að tengja aftur við einstaklinginn í sér eftir svona kröftugt symbiosu-verkefni eins og meðgöngu og fylgjandi!
 
sammála öllum ræðumönnum. um tíma heldur maður að fyrri dýrð verði aldrei aftur náð, huhummm. En svo er ástandið alls ekki svo gasalegt þegar betur er að gáð. Og vel þess virði.
mjög þerapjútískt að hreyfa sig aðeins og skoppa um með spaða. Styð þið í þessu. Jibbí.
 
Að sumu leiti getur maður samsvarað sig þessu enda búinn að fóstra góða bumbu í 27 ár.

Glæsileg og stílhrein síða.

Ps. linkurinn á mig virkar ekki :(
 
Það er með vilja gert Elli, þú ert okkar helsti samkeppnisaðili um net-gesti, við viljum koma þeirri ímynd á legg að síðan þín liggi niðri.
Þetta er í fyrsta skipti sem ég tjái mig á þessari síðu, hversu sorglegt er það?
 
ó, það er sorglegt beibí!

Ertu að afhjúpa það að ég hafi skrifað svona 500 % oftar á þína heimasíðu en þú? djísss...
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?