miðvikudagur, desember 21, 2005

 

JólaNína og ÓjólaMamma

 

Þetta blogg er orðið skuggalega mikið um jólin...enda fátt annað að hugsa um í desember í fæðingarorlofi. Hugsa og hugsa og hugsa um jólin, en verður lítið úr verki. Brrrr...alltaf þetta jólastress, sama þótt maður eigi að heita í "fríi" (ha ha ha, þvílík kaldhæðni). Tókst að flýta verulega fyrir mér með því að panta stóran hluta gjafanna á Amazon og fá síðan hressa póstnáunga (já, barasta eins konar jólasveina) í löngum bunum með kassa fulla af gjöfum meðan ég sit á rassinum og ekkert vesen. Allt annað hefur hins vegar setið á hakanum (afgangurinn af gjöfunum, smákökur, skraut, jólatré, jólakort og þessir smámunir allir). Redda þessu í vikunni, meðfram því að skemmta Nínu Þorbjörgunni minni.
Stelpuskottið hefur hins vegar ekki setið auðum höndum ólíkt mömmunni. Á afrekaskránni þessa dagana er grautarsmakk, veltingur af maga á bak (getur sem sagt rúllað sér núna), prúðmennska í jólahlaðborðum (sjá mynd) og fyrsta veitingahúsaferðin (skellti sér á Jómfrúnna í hádeginu og horfði á mömmu gúffa í sig af jólaplattanum ógurlega). Er orðin svakalega mikill krakki, algjör lengja og dugnaðarforkur sem kann að beita báðum höndum nokkuð markvisst...geri aðrir betur!
Á meðan er ójólalega mamman sem sagt nokkuð löt og hennar helsta afrek að klára hverja jólanammipakkninguna á fætur annarri, áður en hin eiginlegu jól ganga í garð. Er núna búin að stúta tveimur Mackintosh pakkningum og heilu kílói af Nóa-konfekti (fyrir utan vínmolana...sem verða í boði fyrir gesti barasta...endilega kíkið við). Síðast en ekki síst stefnir maður hraðbyri í að fara í jólaköttinn. Var búin að sjá mig fyrir mér mjög móðurlega á aðfangadag, helst í silkikjól með víðu pilsi í stíl við dótturina eins og alvöru stelpumömmu sæmir. Æ æ æ...sjáum til...kannski þetta smelli allt á elleftu stundu.
Kveðja frá Steinunni og Nínu Þorbjörgu ofurbarni Posted by Picasa

Comments:
Þetta reddast allt saman;-) En samt ótrúlega flókin tilvera miðað við að vera í "fríi". Það er amk mín reynsla af desember í fæðingarorlofi!
 
hmmm þetta nammi hljómar vel, ég vildi ég gæti komið. Hún Nína Þorbjört er algjört krútt. Kærar kveðjur frá Heidelberg úr snjónum Begga, Róbert og Daníel (og auðvitað Alex)
 
Jammsí, þetta er sem betur fer allt að reddast og almenn gleði ríkjandi! Rosa gaman að heyra frá þér Begga :) Sendi súper jólakveðjur til ykkar í Heidelberg!
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?