fimmtudagur, desember 15, 2005

 

Gömlu fötin mín

 

Er rosalega fegin að það var eitthvað eftir af gömlu barnafötunum mínum uppi á lofti hjá mömmu. Þar sem ég var á Nínu Þorbjargar aldri á hippatímanum er um að ræða ótrúlegustu litasamsetningar, aðallega appelsínugult og brúnt og síðan er köflótt alltaf vinsælt líka. Sem sagt föt sem þú finnur alls ekki úti í búð í dag og eru verulega skemmtileg. Er satt að segja mjög opin fyrir óvenjulegum barnafötum, það er allt svo ljósbleikt þessa stundina fyrir svona stelpukríli (sem er auðvitað líka mjög sætt, segi það ekki). Nínan á núna hippafötin mín og svolítið af svörtu, svo finnst mér strákafötin oft ekkert síðri en stelpufötin. Því miður held ég að þótt stelpur geti verið í strákafötum verði langt í að það öfuga gildi...sem er í raun fáránlegt ef maður hugsar út í það. Af hverju er svona svaaaakalegt að strákur sé í bleiku??? Svona svo maður endi þetta á smávegis hneyksluðum nótum... Posted by Picasa

Comments:
Algjör skvísa :)
Sammála með litinn á fötunum, þetta er sama og það virðist vera í lagi að stelpur leiki sér að bílum...en strákar mega ekki leika sér að dúkkum.
 
Það er bara siðlaust...
 
Sonur minn má sko alveg leika sér að dúkkum og verður að gera það á leikskólanum. Hann er samt víst mest hrifinn af íþróttum og einhverjum dýrum í valinu :-) Ella Lilja er einmitt alveg svaka pæja þessa dagana í útigalla sem ég átti þegar ég var lítil. Hann er sko dökkblár með svolítið útvíðum skálmum og heaví kúl verð ég að segja.

Ella á ALLT OF MIKIÐ af ljósbleiku dótaríi. Ég kaupi það ekki mikið sjálf en fjölskyldan gerir það nánast eingöngu!
 
Ó, það er svakalegt beibí! Neinei, alveg sammála þessum pælingum.
 
Akkúrat! Hef meira að segja heyrt af ungum drengjum sem vilja dúkkur í jólagjöf og þar með komið öllu í uppnám á heimilinu :) Finnst nú sjálfsagt að leyfa þeim að æfa sig fyrir framtíðina í bleiku dressi með dúkku í vagni ef vilji þeirra sjálfra er fyrir hendi :) :)
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?